
Vallaskóli, Selfossi
Vallaskóli varð til 1. ágúst 2002 við sameiningu skólanna tveggja á Selfossi, Sólvallaskóla og Sandvíkurskóla. Skólinn er því nýr skóli á gömlum grunni. Vallaskóli er tæplega 600 nemenda skóli í hjarta Selfoss. Sérstaða skólans er m.a. smiðjukennsla á unglingastigi, öflugt list og verkgreinastarf og við skólann er fjölmenningardeild, sjá www.vallaskoli.is.
Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, jákvæðan aga, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að skólastarfinu koma. Starfsmenn skólans munu taka þátt í stefnumörkun hans sem tekur meðal annars mið af menntastefnu Sveitarfélagins Árborgar sem byggir á hugmyndinni um skólann sem lifandi lærdómssamfélag.

Umsjónarkennari á yngsta stigi í Vallaskóla - 100% staða
Vallaskóli er um 520 nemenda skóli í hjarta Selfoss. Sérstaða skólans er m.a. öflugt list- og verkgreinastarf og við skólann er fjölmenningardeild. Í Vallaskóla er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu kennara, ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að skólastarfinu koma.
Auglýst er eftir 100% stöðu umsjónarkennara á yngsta stigi frá 1. ágúst 2026.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Annast kennslu samkvæmt meginmarkmiðum Aðalnámskrá grunnskóla með hliðsjón af þörfum og þroska nemenda.
- Umsjón með daglegu skólastarfi og viðkomandi nemendahópum.
- Tekur þátt í teymisvinnu/teymiskennslu í árgangi.
- Samskipti á vegum skólans og við foreldra/forráðamenn.
- Fylgist með velferð nemenda og hlúir að þeim í samstarfi við fagaðila eftir þörfum.
- Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skólans og sveitarfélagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leyfisbréf kennara.
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð.
- Hæfni og áhugi á skólastarfi.
- Góð færni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku.
- Áhugi á skólaþróun og skapandi kennsluháttum mikilvægur.
Auglýsing birt18. maí 2026
Umsóknarfrestur28. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Sólvellir 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Skólastjóri - Þorláksskóli
Þorláksskóli

Urriðaholtsskóli - sérkennari á mið- og unglingastigi
Garðabær

Urriðaholtsskóli - textílkennari
Garðabær

Urriðaholtsskóli - umsjónakennarar á yngsta- og miðstig
Garðabær

Kennarar í Auðarskóla, Búðardal
Auðarskóli

Deildarstjóri á yngsta stigi - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær

Náms- og starfsráðgjafi við Grunnskóla Reyðarfjarðar og Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar
Grunnskóli Reyðarfjarðar

Umsjónarkennari á yngsta stigi - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær

Lágafellsskóli - umsjónarkennari á yngsta og miðstigi
Lágafellsskóli

Kennari í stoðþjónustu Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli

ÍSAT kennari Hólabrekkuskóla
Hólabrekkuskóli