
Fastland ehf
Fastland er bókhaldsstofa sem sinnir bókhaldsþjónustu, launavinnslu, uppgjörum og skattframtölum fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Launafulltrúi
Ert þú skipulagður og nákvæmur einstaklingur með brennandi áhuga á launavinnslu? Langar þig að starfa í faglegu og traustu umhverfi þar sem persónuleg þjónusta og áreiðanleiki er í forgrunni?
Við leitum af reynslumiklum og metnaðarfullum launafulltrúa í okkar teymi til að sinna launavinnslu og ráðgjöf fyrir viðskiptavini Fastlands.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni
- Útreikningur launa fyrir starfsfólk viðskiptavina
- Skil á gögnum til Skattsins, lífeyrissjóða og stéttarfélaga
- Ráðgjöf um launamál, réttindi og skyldur starfsfólks
- Afstemming launaliða og greiðslna til lífeyrissjóða
- Önnur tilfallandi verkefni
Ábyrgð
- Tryggir að laun séu rétt reiknuð og greidd á réttum tíma
- Ber ábyrgð á réttum og tímanlegum skilum gagna
- Veitir faglega ráðgjöf varðandi launamál
Menntunar- og hæfniskröfur
- Mjög góð reynsla af launavinnslu
- Þekking á kjarasamningum og vinnurétti
- Þekking á DK launum, BC launakerfi og H3-launum er kostur
- Góð tölvukunnátta
- Mjög góð færni í íslensku, bæði í rituðu og töluðu máli
- Færni í ensku, bæði í rituðu og töluðu máli er kostur
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og góð samskiptahæfni
Auglýsing birt15. apríl 2026
Umsóknarfrestur29. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Höfðabakki 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
DKFrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiMicrosoft ExcelSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar


