
Íslenska gámafélagið
Íslenska gámafélagið er framúrskarandi vinnustaður, þar sem metnaðarfullt starf er unnið af jákvæðu, samstilltu og ábyrgu fólki í anda jafnræðis. Íslenska Gámafélagið var fyrst íslenskra fyrirtækja til að hljóta jafnlaunavottun. Leitast er við að tryggja starfsmönnum sem best starfsskilyrði og möguleika til að vaxa og dafna í starfi. Gildin okkar eru gleði, áreiðanleiki og metnaður og við höfum þau að leiðarljósi í öllum okkar störfum. Íslenska gámafélagið hefur fengið viðurkenningu Creditinfo sem framúrskarandi fyrirtæki frá árinu 2016.

Lagerstarfsmaður óskast
Íslenska Gámafélagið leitar nú að öflugri og metnaðarfullri manneskju til að ganga til liðs við söludeild fyrirtækisins og sinna lagerstörfum. Um er að ræða fullt starf á starfsstöð okkar að Kalksléttu í Reykjavík og þarf viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.
Meginhlutverk lagermanns er að taka til vörur til úthlutnunar, halda góðu skipulagi á lagernum og að birgðahald sé rétt. Mikilvægt er að vera með góða samskiptahæfileika og afgreiða pantanir á tilsettum tíma. Áhersla skal lögð á starfsánægju, starfsþróun og gott starfsumhverfi. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og jákvæðni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Tiltekt á vörum fyrir smásölu
- Móttaka og frágangur á öllum vörum fyrir smásölu
- Umsjón með merkingum á kör, tunnur og gáma
- Frágangur á fylgibréfum vegna pakkapósts.
- Önnur tilfallandi lagerstörf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Íslenskukunnátta skilyrði
- Framúrskarandi þjónustulund
- Jákvætt viðmót og hæfni í samskiptum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Mjög góð færni í íslensku og ensku
- Stundvísi, sveigjanleiki og skipulagshæfni
- Reynsla og/eða menntun sem nýtist í starfi
- Vinnuvélaréttindi skylda (lyftararéttindi)
Auglýsing birt2. júlí 2025
Umsóknarfrestur20. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Kalkslétta 1, 162 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
BirgðahaldJákvæðniLagerstörfSkipulagStundvísiVinnuvélaréttindi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Fullt starf í verslun/Full time job in store
ÍSBJÖRNINN

Aukavaktir í Olís Garðabæ
Olís ehf.

N1 Hveragerði
N1

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður í móttöku á barna- og unglingageðdeildar
Landspítali

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á kvenlækningadeild
Landspítali

Bílstjóri / Lestunarmaður
Vaðvík

Árbæjarlaug - Sundlaugarvörður
Reykjavíkurborg

Akranes - verslunarstjóri
Vínbúðin

Apótekarinn - Flakkari
Apótekarinn

Þjóna með reynslu í sal- 20 ára eða eldri
Fiskmarkaðurinn

Standsetning og þrif / PDI and detailing
Porsche á Íslandi

Orkan Akranesi - Sbarro - Ísbúð Vesturbæjar
sbarro