

Komdu til liðs við okkur á Andrastaði – starf með tilgang
Ert þú drífandi, jákvæð og lausnamiðuð manneskja sem hefur gaman af því að vinna með fólki?
Andrastaðir leita að öflugu fólki til liðs við okkur á heimili fyrir fullorðna karlmenn með fjölþættan vanda á Kjalarnesi.
Starfið er fjölbreytt og gefandi og hentar vel þeim sem hafa frumkvæði, eiga auðvelt með að vinna í teymi og vilja láta gott af sér leiða. Hjá okkur gefst spennandi tækifæri til að taka virkan þátt í áframhaldandi uppbyggingu og þróun Andrastaða.
Unnið er í vaktavinnu og við erum opin fyrir mismunandi starfshlutfalli.
Langar þig í starf þar sem þú getur haft raunveruleg áhrif? Þá viljum við heyra frá þér.
Frekari upplýsingar um starfið veitir Marý í tölvupósti: [email protected]
andrastadir.is
- Hvetja og styðja þjónustuþega til aukins sjálfstæðis, sjálfshjálpar og virkrar þátttöku í eigin lífi.
- Veita félagslegan stuðning og hvatningu með áherslu á styrkleika, áhugasvið og markmið hvers einstaklings.
- Styðja þjónustuþega við daglegt líf og heimilishald, svo sem matseld, þrif og önnur verkefni, með það að markmiði að efla færni og sjálfstæði.
- Taka virkan þátt í að skapa og þróa ný tækifæri til virkni, félagslegrar þátttöku og innihaldsríks daglegs lífs.
- Styðja þjónustuþega við að uppgötva og efla eigin styrkleika og undirbúa þá fyrir þátttöku á vinnumarkaði með virkni, starfsþjálfun og markvissum stuðningi.
Við leitum að þér sem...
- Ert lausnamiðuð/aður, sýnir frumkvæði og átt auðvelt með að takast á við fjölbreyttar aðstæður.
- Hefur jákvætt viðmót, góða samskiptahæfni og sterka hæfni til teymisvinnu.
- Getur unnið sjálfstætt, sýnt ábyrgð og tekið ákvarðanir þegar þess þarf.
- Hefur áhuga á að starfa með fólki með fjölþættar stuðningsþarfir og geðrænar áskoranir.
- Hefur reynslu af sambærilegu starfi – það er kostur en ekki skilyrði.
- Hefur háskólamenntun sem nýtist í starfi – það er kostur.
- Hefur góða íslenskukunnáttu.
- Ert með gilt ökuskírteini.
- Getur framvísað hreinu sakavottorði.
Við leggjum ekki síður áherslu á persónulega eiginleika, viðhorf og vilja til að læra og þróast í starfi en fyrri reynslu.
Íslenska










