

Kirkjugarðar Reykjavíkur - Fossvogsgarður
Kirkjugarðar Reykjavíkur leita af metnaðarfullum og drífandi einstaklingum í framtíðarstörf á sviði umhirðu og jarðsetninga í Fossvogsgarði.
Starfið er mjög fjölbreytt en krefst hæfni og þekkingar. Það felur meðal annars í sér almenna umhirðu kirkjugarðanna, vinnu á vélum og fjölbreytt verkefni sem snúa að viðhaldi garðanna.
Um er að ræða tvö störf:
- Annars vegar leitum við að einstaklingi með reynslu af jarðvinnu, vinnuvélum og öðru sambærilegu sem nýtist við störf í viðhaldi og umhirðu kirkjugarða.
- Hins vegar leitum við að einstaklingi með menntun og/eða reynslu á sviði garðyrkju sem getur unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði og tekið ábyrgð á verkefnum er snúa að umhirðu garðanna.
Starfsmenn vinna saman að því að veita góða og nærgætna þjónustu í fallegu og rólegu umhverfi.
Kirkjugörðum Reykjavíkur er umhugað um sitt starfsfólk og leggur ríka áherslu á vellíðan í starfi.
Óskað er eftir að viðkomandi hefji störf 1. september næstkomandi eða eftir samkomulagi
- Umhirða og viðhald kirkjugarða
- Grafartekt
- Jarðvinna og vélavinna
- Verkstjórn með sumarstarfsfólki
- Önnur tilfallandi störf
Í starfinu felst ábyrgð á að þjónusta sé veitt af fagmennsku, nærgætni og virðingu og að öryggisreglum sé fylgt í hvívetna.
- Menntun á sviði garðyrkju/skrúðgarðyrkju eða sambærileg menntun kostur.
- Áhugi á garðyrkju og reynsla af sambærilegum störfum er skilyrði.
- Reynsla af vinnuvélum og góð færni.
- Handlagni, útsjónarsemi og sjálfstæð vinnubrögð.
- Jákvæðni, góð samskiptafærni og geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi.
Íslenska
Enska







