
Steypustöðin
Steypustöðin var stofnuð árið 1947 og eru aðalstöðvar félagsins á Malarhöfða 10 Reykjavík.
Steypustöðin er með útibú á nokkrum stöðum eins og Hafnarfirði, Selfossi, Helguvík, Borgarnesi og Þorlákshöfn ásamt tveimur færanlegum Steypustöðvum.
Eins og nafnið gefur kynna til er meginstarfssemi félagsins framleiðsla og afhending á steypu. Félagið rekur einnig helluverksmiðju, flotbíla fyrir flotmúr, múrverslun, efnisvinnslu og stærstu einingaverksmiðju landsins í Borgarnesi.
Hjá félaginu starfa nú um 300 starfsmenn

Vélamaður á jarðýtu
Steypustöðin leitar að sterkum og nákvæmum vélamanni í fullt starf. Ef þú hefur gaman af því að stjórna vinnuvélum og vinnur vel undir álagi gæti þetta verið rétta starfið fyrir þig.
Starfið felst í stjórnun jarðýtu við efnisvinnslu í Vatnsskarðsnámu. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af malarvinnslu og geti unnið sjálfstætt.
Vinnutími er frá kl. 07:30 til 18:00 alla virka daga, með möguleika á yfirvinnu.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Kostur er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun jarðýtu við efnisvinnslu í námu
- Ýta efni úr námunni niður að vinnslubúnaði
- Tryggja jafnt og öruggt flæði efnis til áframhaldandi vinnslu
- Daglegt eftirlit og umhirða jarðýtu
- Tilkynna um bilanir og viðhaldsþörf
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stóru vinnuvélaréttindin, þ.e. hjólaskóflu, beltagröfu og jarðýtu
- Meirapróf er kostur
- Reynsla af sambærilegu starfi er æskileg en ekki nauðsyn
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Samviskusemi
- Íslensku- og/eða enskukunnátta æskileg
- Metnaður og áhugi fyrir efnisvinnslu
Fríðindi í starfi
- Jákvætt og hvetjandi vinnuumhverfi
- Líkamsræktarstyrkur
- Námskeið og fræðsla
- Fjölbreytt verkefni
- Hádegismatur
Auglýsing birt12. júní 2026
Umsóknarfrestur28. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Vatnsskarðsnáma
Starfstegund
Hæfni
MetnaðurSamviskusemiStundvísiVinna undir álagiVinnuvélaréttindi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Laus störf í byggingavinnu, hellulagnir, yfirborðsfrágang og jarðvinnu
PK Verk ehf.

Verka- og vélamenn
Garðlist ehf

Aðstoðarverkstjóri á Málningar- og réttingarverkstæði Toyota Kauptúni
Toyota

Starfsmaður í framleiðslu og merkingar
Signa ehf

Infrastructure Technician – Piping & Cooling Systems
Verne Global ehf

Customer Support Supervisor
Verne Global ehf

Starfsmaður á verkstæði: Bifvélavirki / vélvirki
Intellecta

Við leitum að öflugum liðsfélaga í gufuveitu
Orka náttúrunnar

Reyndur pípari óskast til starfa
Aðallagnir

Vinnslustjóri
Samherji hf.

Verkstjóri rafmagns á Suðurnesjum
HS Veitur hf

Bílstjóri með meirapróf óskast
Dreki ehf