Advania
Advania
Advania

Kerfisstjóri í notenda- og útstöðvaþjónustu

Við leitum að glaðlyndri, ábyrgri og áhugasamri manneskju í starf kerfisstjóra í notenda- og útstöðvaþjónustu Advania. Ef þú hefur brennandi áhuga á tækni og ert með framúrskarandi þjónustulund þá yrðir þú fullkomin viðbót í okkar frábæra teymi!

Starf kerfisstjóra felur í sér almenna þjónustu við úrlausn tæknilegra vandamála sem kunna að koma upp hjá okkar viðskiptavinum hvort það sé í skýjalausnum, útstöðvum, símalausnum eða öðrum vandamálum sem okkar viðskiptavinir lenda í.

Við leitum að persónu sem er almennt tæknilega sinnuð og fljót að tileinka sér nýja hluti. Við viljum sjá þig blómstra í starfsumhverfi þar sem skilvirkni skiptir máli og sjálfstæði er lykillinn að árangri. Æskilegt er að þú hafir góða þekkingu á upplýsingatækni og það væri sannarlega kostur ef þú værir með vottaða þekkingu á sviði Microsoft.

Hæfnikröfur

  • Framúrskarandi þjónustulund og vilji til að fara fram úr væntingum viðskiptavina
  • Reynsla og góð þekking á upplýsingatækni
  • Öguð vinnubrögð og geta til að vinna sjálfstætt
  • Reynsla af rekstri IT kerfa fyrirtækja er kostur
  • Góð þekking á Microsoft Windows stýrikerfinu, Microsoft 365 og öðrum algengum notendahugbúnaði
  • Þekking á Active Directory og Microsoft Server kostur
  • Vottuð þekking á sviði ofangreindra Microsoft lausna er kostur

Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar kröfur þá hvetjum við þig samt sem áður til þess að sækja um, þú gætir einmitt verið einstaklingurinn sem við leitum að.

Auglýsing birt15. júní 2026
Umsóknarfrestur29. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Austursíða 6, 603 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar