
Álfaheiði
Á leikskólanum Álfaheiði eru fjórar deildir en á þeim dvelja 79 börn á aldrinum eins til sex ára. Leikskólinn er staðsettur á sunnan verðum Digraneshálsi og er stutt í skemmtileg útivistarsvæði.
Starf leikskólans gengur út frá því að börn séu skapandi og getumiklir einstaklingar og því sé mikilvægt að búa til áhugavert umhverfi fyrir þau, jafn innandyra sem utan, þar sem leikur fær að njóta sín. Starfsfólk telur að börn þroskist best í jákvæðu, öruggu, hlýju og tilfinningaríku umhverfi þar sem borin er virðing fyrir þeim og skoðunum þeirra. Því er lögð áhersla á hlýlegt og örvandi umhverfi og er leikskólinn skreyttur með listaverkum eftir börnin.
Á leikskólanum Álfaheiði er unnið í anda námsefnisins Lífsmenntar e. Value Based Education en einkunnarorð leikskólans eru „Deilum gildum okkar til að skapa betri heim.“ Á leikskólanum hefur verið unnið markvisst með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2010. Álfaheiði er einnig Réttindaskóli UNICEF en í því felst að byggja upp lýðræðislegt umhverfi, standa vörð um réttindi barna og rækta með markvissum hætti þekkingu, leikni og viðhorf sem hjálpar börnum að verða gagnrýnir, virkir og hæfir þátttakendur í samfélaginu okkar.

Kennari eða reynslumikill leiðbeinandi óskast í leikskólann Álfaheiði
Leikskólinn Álfaheiði óskar eftir kennara eða reynslumiklum leiðbeinanda.
Í leikskólanum Álfaheiði eru 79 börn á aldrinum eins til fimm ára og við skólann starfar reynslumikill og skemmtilegur hópur fagfólks. Faglegt starf í leikskólanum er mjög öflugt og leikskólinn er m.a. í fararbroddi í innleiðingu á réttindaskóla UNICEF.
Einkunnarorð leikskólans eru: deilum gildum okkar til að skapa betri heim.
Leikskólinn er staðsettur á fallegum stað í Kópavogi í nálægð við skemmtilegt útivistarsvæði, en útivera og umhverfismennt er mikilvægur þáttur í starfinu. Við óskum eftir leikskólakennara eða reynslumiklum leiðbeinanda í okkar góða starfshóp. Um 100% starf er að ræða.
Nánari upplýsingar um leikskólann má finna á http://alfaheidi.kopavogur.is/
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinnur að uppeldi og menntun barnanna
- Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna
- Sinnir þeim verkefnum er varðar uppeldi og menntun barnanna sem yfirmaður felur honum
- Starfið felur í sér almenna kennslu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennari eða önnur uppeldismenntun
- Reynsla af vinnu með börnum
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði í starfi
- Jákvæðni og færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
- Ef ekki fæst leikskólakennari verður ráðinn starfsmaður með aðra uppeldismenntun eða leiðbeinandi
Fríðindi í starfi
- Starfsfólk leikskóla getur sótt um forgang í leikskóla fyrir börnin sín auk þess að fá 40% afslátt af leikskólagjöldum.
- Starfsfólk leikskóla fær fríar máltíðir og borðar með börnunum.
- Allt fastráðið starfsfólk Kópavogsbæjar á rétt á líkamsræktarstyrk og fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.
- Styttri vinnuvika - Leikskólar Kópavogs loka flestir milli jóla og nýárs, í dymbilviku og vetrarleyfum og þá býðst starfsfólki að taka út hluta af uppsafnaðri vinnutímastyttingu.
Auglýsing birt16. júní 2025
Umsóknarfrestur1. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Álfaheiði 46, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Verkefnastjóri í skólaþjónustu
Borgarbyggð

Framkvæmdastjóri
Specialisterne

Skólastjóri Nesskóla
Fjarðabyggð

Starfsfólk í leikskólann Naustatjörn
Akureyri

Kennari ungbarnaleikskóla, fullt starf
Seltjarnarnesbær

Lausar stöður
Leikskólinn Leikholt

Deildarstjóri leikskóla, fullt starf
Seltjarnarnesbær

Starfsmaður á leikskóla, fullt starf
Seltjarnarnesbær

Kennari, fullt starf
Seltjarnarnesbær

Leikskólakennarar óskast á Hulduberg
Leikskólinn Hulduberg

Leikskólinn Álfaborg, Svalbarðseyri, óskar eftir sérkennara í 50% stöðu
Svalbarðsstrandarhreppur

Sérkennari/Þroskaþjálfi í sérdeild einhverfa á eldra stigi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli