

Karlkyns starfsmaður í sundlaug Eskifjarðar
Sundlaug Eskifjarðar óskar eftir jákvæðum karlmanni með ríka þjónustulund í 100% starf.
Við viljum gjarnan að þú getir hafið störf sem fyrst!
Um vinnustaðinn
Sundlaug Eskifjarðar er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem engir tveir dagar eru eins.
Sundlaug Eskifjarðar samanstendur af - 25 metra sundlaug með þremur heitum pottum og gufubaði. Í sama húsnæði er einnig heilsurækt
Við erum samstillt teymi 5 starfsmanna sem vinnum á vöktum - morgna, kvöld og helgar - og erum hluti af íþróttamannvirkjum Fjarðabyggðar, þar sem starfa um 30 manns.
Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitafélaga og viðkomandi stéttafélags
Nánari upplýsingar veitir Sigurjón Egilsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 863 7080 eða á netfangið [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit og gæsla með sund- og baðgestum
- Gæsla í íþróttahúsi og líkamsræktarstöð
- Aðstoð við skólabörn fyrir og eftir sund- og leikfimikennslu
- Afgreiðsla og þjónusta við gesti
- Þrif og almenn umhirða
- Að stuðla að góðri stemningu og jákvæðu viðmóti gagnvart gestum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Æskilegt að hafa reynslu af þjónustustörfum
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Frumkvæði og skipulagshæfni
- Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót
Við bjóðum
- Skemmtilegt og samheldið starfsumhverfi
- Fjölbreytt og líflegt starf þar sem gleði og samvinna eru í forgrunni
- Laun samkvæmt kjarasamningi Íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags
Íslenska
Enska










