ELKO
ELKO
ELKO

Jólastarf í vefverslun ELKO

Við leitum að starfsfólki til starfa í vefverslun tímabundið yfir jólatímabilið. Ráðningatímabilið er frá byrjun nóvember 2020 til lok janúar 2021.
Starfið felur í sér tiltekt og afgreiðslu pantana auk eftirkaupaþjónustu og úrlausn erinda viðskiptavina. Starfsfólk í vefverslun sinnir einnig akstri á milli verslana ELKO.
Vinnutíminn er eftir vaktafyrirkomulagi en miðast almennt við 08:00 – 16:00 en lengd vakta geta verið allt frá 8-12 klst. Kvöldvinna og helgarvinna frá lok nóvember og út desember er einnig í boði.

Umsækjendur þurfa að geta hafið störf um miðjan nóvember.

Hæfniskröfur:

  • 20 ára og eldri
  • Góð tök á íslensku máli, bæði skriflega og munnlega
  • Áhugi og vilji til að veita viðskiptavinum og samstarfsmönnum góða aðstoð og þjónustu
  • Rík þjónustulund
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Skipulagsfærni
  • Reynsla og þekking á Navision kostur
  • Góð meðmæli og hreint sakavottorð
  • Reyklaus
  • Gilt bílpróf

Umsóknarfrestur er til 31.10.2020

Við hetjum alla, sem uppfylla hæfniskröfurnar, til að sækja um!

Elko starfrækir vottað jafnlaunakerfi og hefur skuldbundið sig til að greiða jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf.

Auglýsing birt15. október 2020
Umsóknarfrestur31. október 2020
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Skarfagarðar 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar