
Fullnægjandi hlutastarf í nýrri verslun Blush
Fullnægjandi störf í boði
Blush leitar að öflugum og jákvæðum einstakling í teymið okkar!
Í tilefni af opnun nýrrar verslunar þá viljum við bæta við okkur skemmtilegu og drífandi starfsfólki í verslanir okkar á höfuðborgarsvæðinu.
Starfið felst fyrst og fremst í afgreiðslu og þjónustu í versluninni, en einnig er möguleiki á að taka að sér heimakynningar. Kynningar fara annað hvort fram í verslunum Blush eða í heimahúsum.
Við leitum að einstaklingi sem er:
- Jákvæður, sjálfstæður og á auðvelt með mannleg samskipti
- Hefur áhuga á vellíðan, unaði og kynheilbrigði
- Getur hafið störf við fyrsta tækifæri
Við bjóðum upp á skemmtilegt vinnuumhverfi og góðan starfsanda, ef þú hefur áhuga á að slást í hópinn okkar, heyrðu þá í okkur!
Um Blush
Blush hefur verið leiðandi í sölu kynlífstækja frá árinu 2011. Verslunin sérhæfir sig í sölu á hágæða kynlífstækjum og leggur áherslu á vönduð og góð endurhlaðanleg tæki. Verslanir Blush eru staðsettar á Dalvegi 32b í Kópavogi og Glerártorgi Akureyri.
- Afgreiðsla í verslun
- Áfylling á vörum
- Þjónusta viðskiptavini
- Önnur tilfallandi verkefni
- Góð Íslensku kunnátta
- 23 ára eða eldri
- Reynsla af verslunar- og/eða þjónustustörfum
- Metnaður
- Stundvísi
Íslenska
Enska










