
Vaktstjóri afgreiðslu
Vaktstjóri ber ábyrgð á daglegri þjónustu og tryggir að þjónusta við viðskiptavini, hreinlæti og starfsumhverfi séu ávallt til fyrirmyndar. Starfið felur í sér umsjón með afgreiðslu, daglegum þrifum á ákveðnum svæðum í samvinnu við ræstiteymi Sporthússins ásamt leiðsögn starfsfólks á vakt. Unnið er 7-8 tíma á morgun-milli- og kvöldvöktum til skiptis og annan hvern laugardag 8-14. Flestar vaktir eru frá kl. 05:15-13:15- 12:00-20:00 og 16:00-23:00 mán.-fös. og 07:45-14:00 annan hvern laugardag. Stundvísi er mjög mikilvæg
Gott væri ef starfsmaður gæti hafið störf sem fyrst.
Ef spurningar vakna má senda á [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ber ábyrgð á daglegri þjónustu sem Sporthúsið veitir á sinni vakt, skipuleggur verkefni og forgangsraðar í samráði við rekstrarstjóra/framkvæmdastjóra.
- Leiðbeinir, styður og fylgir eftir starfsfólki á vakt.
- Tryggir að verklagsreglum, öryggisreglum og þjónustustöðlum sé fylgt.
- Tekur á móti og þjálfar nýtt starfsfólk.
- Heldur utan um samskipti við rekstrarstjóra og skilar upplýsingum um frávik, bilanir eða önnur atriði sem krefjast eftirfylgni.
- Veitir framúrskarandi þjónustu og tekur vel á móti viðskiptavinum.
- Leiðbeinir viðskiptavinum um þjónustu, reglur og aðstöðu.
- Tekur á móti ábendingum og kvörtunum á faglegan og lausnamiðaðan hátt.
- Tekur virkan þátt í daglegum þrifum stöðvarinnar.
- Fylgist með að öll svæði séu hrein, snyrtileg og tilbúin fyrir viðskiptavini.
- Fylgist með ástandi tækja og húsnæðis.
- Tryggir að öryggisbúnaður og neyðarútgangar séu ávallt aðgengilegir og í lagi.
- Opnar og lokar stöðinni samkvæmt verklagsreglum þegar við á.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af þjónustustörfum er skilyrði
- Góð samskiptafærni og þjónustulund.
- Frumkvæði, ábyrgðarkennd og skipulagshæfni.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og taka ákvarðanir.
- Jákvætt viðmót og hæfni til að leiða með góðu fordæmi.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
- Almenn tölvukunnátta.
Fríðindi í starfi
Líkamsræktarkort
Makakort í líkamsræktina
afslátt hjá samstarfsaðila
Auglýsing birt22. október 2026
Umsóknarfrestur28. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Flugvallarbraut 701, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
AfgreiðslaÁreiðanleikiDrifkrafturFljót/ur að læraJákvæðniMannleg samskiptiÖkuréttindiReyklausSamskipti með tölvupóstiSnyrtimennskaSölumennskaTeymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

SALES ASSISTANT - Remember Reykjavík & Friends
Remember Reykjavík

Afgreiðslustarf í Farmasíu apóteki
Farmasía

Starfsmaður í Marc O'Polo
Marc O'Polo Kringlunni

Afgreiðsla og útstillingar
Bóksala stúdenta

Dalvík - starfsmaður
Vínbúðin

Akureyri - starfsmaður
Vínbúðin

Þjónustufulltrúi óskast hjá Hringdu!
Hringdu

Starfsmaður í borðsal og þjónustumiðstöð - Hrafnista Hraunvangi
Hrafnista

Þjónustufulltrúi / Service Agent
Campeasy

Icewear Goðafossi - Sölufulltrúar í afleysingar
ICEWEAR

Starf í áfyllingu - Egilsstaðir
Ölgerðin

Heilbrigðisritari/ skrifstofustarf - Hera sérhæfð líknarþjónusta
Landspítali