

Íþrótta- og sundkennari
Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum íþróttakennara til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi með okkur veturinn 2026 - 2027. Óskum eftir íþrótta-og sundkennara í 60 % starfshlutfall.
Selásskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1. - 7. bekk. Í skólanum eru um 200 nemendur og um 40 starfsmenn. Kjörorð skólans er: Látum þúsund blóm blómstra og gildisáherslur hans eru: Virðing – gleði - vinátta. Boðið er upp á fjölbreytt og skapandi nám sem stuðlar að alhliða þroska nemenda með það að markmiði að nemendur verði sjálfstæðir og skapandi einstaklingar í síbreytilegu samfélagi. Skólinn leggur áherslu á lestur/læsi, sköpun, teymiskennslu og upplýsingatækni. Enn fremur umhverfismennt með það að markmiði að nemendur skilji, þekki og virði umhverfi sitt og náttúru.
Umsókn fylgi ferilskrá, menntunargögn og annað er málið varðar. Frekari upplýsingar um skólann má nálgast á heimasíðu hans www.selasskoli.is
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Annast íþróttakennslu og sundkennslu í samráði við skólastjórnendur, aðra kennara og foreldra.
Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsmönnum. Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk.
Vinna samkvæmt stefnu skólans.
Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks.
Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
Menntun og hæfni til íþróttakennslu (sund og leikfimi).
Reynsla og áhugi á að starfa með börnum.
Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
Faglegur metnaður.
Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi.
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti.
sundkort, heilsustyrkur
Íslenska
