Fimleikafélagið Björk
Fimleikafélagið Björk

Klifurþjálfari óskast í öflugt teymi Fimleikafélagsins Björk

Fimleikafélagið Björk leitar að jákvæðum og metnaðarfullum klifurþjálfara sem hefur ánægju af því að starfa með börnum og ungmennum.

Starfið felst í þjálfun barna og ungmenna í klifurdeild félagsins. Þjálfari kennir samkvæmt kennsluáætlun Fimleikafélagsins Bjarkar og í samræmi við viðmið og fræðslu Klifursambands Íslands (www.klifursamband.is).

Starfshlutfall er eftir samkomulagi og vinnutími að mestu síðdegis og á kvöldin. Starfið getur því hentað vel samhliða námi eða öðru starfi.

Við leitum að ábyrgum einstaklingi sem vill taka virkan þátt í faglegu og skemmtilegu starfi félagsins og stuðla að öruggu, hvetjandi og jákvæðu æfingaumhverfi fyrir iðkendur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjálfun barna og ungmenna í klifri
  • Skipulagning og undirbúningur æfinga í samstarfi við yfirþjálfara
  • Kennsla á grunntækni, hreyfingum og færni í klifri
  • Aðlögun æfinga að aldri, getu og þörfum iðkenda
  • Að tryggja að öryggisreglum og verklagi félagsins sé fylgt
  • Að skapa öruggt, jákvætt og hvetjandi æfingaumhverfi
  • Samstarf við aðra þjálfara, yfirþjálfara og starfsfólk félagsins
  • Þátttaka í viðburðum, mótum og öðrum verkefnum deildarinnar eftir því sem við á
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð þekking og reynsla af klifri er nauðsynleg
  • Reynsla af klifurþjálfun er æskileg
  • Þjálfaramenntun eða viðurkennd þjálfaranámskeið eru kostur
  • Þekking á öryggisreglum og öruggum vinnubrögðum í klifri
  • Áhugi og hæfni til að starfa með börnum og ungmennum
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Jákvæðni, frumkvæði og samviskusemi
  • Hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og með öðrum
  • Hreint sakavottorð er skilyrði

Klifursamband Íslands býður meðal annars upp á þjálfaranámskeið í samstarfi við ÍSÍ. Nánari upplýsingar hjá Klifursambandi Íslands

Fríðindi í starfi
  • Skemmtilegt og gefandi starf með börnum og ungmennum
  • Sveigjanlegt starfshlutfall eftir samkomulagi
  • Starf sem hentar vel samhliða námi
  • Öflugt og fjölbreytt starfsumhverfi
  • Gott samstarf og stuðningur frá reyndum þjálfurum og stjórnendum
  • Tækifæri til starfsþróunar og aukinnar þekkingar á sviði klifurþjálfunar
Auglýsing birt5. ágúst 2026
Umsóknarfrestur1. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Haukahraun 1, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FimleikarPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Skipulag
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar