
Barnaskóli Kársness
Við Skólagerði í Kópavogi er að rísa ný og nútímaleg skólabygging, þar sem áður stóð gamli Kársnesskóli. Nýr skóli mun taka þar til starfa haustið 2025 - Barnaskóli Kársness.
Skólinn mun hýsa fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Byggingin verður öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi. Í skólanum verða 60 – 80 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.

ÍSAT kennari óskast í Barnaskóla Kársness
Barnaskóli Kársness er nýr skóli sem hýsir fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Skólabyggingin er öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi fyrir um 60-80 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.
Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum kennara til að sinna kennslu í íslensku sem annað tungumál (ÍSAT). Um spennandi starf er að ræða fyrir kennara sem vill taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfs í nýjum skóla, börnum til heilla.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kennsla í íslensku fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku skv. aðalnámskrá
- Skipulagning og aðlögun náms nemenda með mismunandi tungumála- og menningarbakgrunn
- Þjálfun félagsfærni og sjálfstæðra vinnubragða nemenda
- Stuðningur við nemendur í daglegu starfi í samstarfi við umsjónarkennara og deildarstjóra
- Ráðgjöf við kennara og foreldra um nám og kennslu
- Vinna að þróun skólastarfs með stjórnendum og samstarfsfólki
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Framhaldsmenntun í kennslu íslensku sem annars tungumáls er æskileg
- Reynsla af kennslu nemenda með mismunandi tungumála- og menningarbakgrunn æskileg
- Reynsla af einstaklingsmiðaðri nálgun í kennslu
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði, umburðarlyndi og víðsýni
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki
- Skipulagshæfileikar
- Góð þekking á upplýsingatækni
- Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
Auglýsing birt5. ágúst 2026
Umsóknarfrestur19. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Skólagerði 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Kennarar - Leikskólinn Vesturkot
Hafnarfjarðarbær

Leikskólakennari eða uppeldismenntaður starfsmaður óskast til starfa
Leikskólinn Sumarhús

Stuðningur í sérkennslu
Leikskólinn Jörfi v/Hæðargarð

Óskum eftir leikskólakennara í Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg

Barnagæsla og aðstoð við heimilisstörf
Vinnvinn

Viltu vera hluti af lifandi vinnustað og starfa í skemmtilegu vinnuumhverfi?
Leikskólar stúdenta

Leikskólakennari / leiðbeinandi
Heilsuleikskólinn Urriðaból II

Forfallakennari - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær

Enskukennari óskast í hlutastarf
Snælandsskóli

Ungbarnaleikskóli - Þroskaþjálfi: 50-100% starf.
Seltjarnarnesbær

Starfsmaður í stuðning/sérkennslu í leikskóla
Leikskólinn Engjaborg

Sérkennslustjóri
Leikskólinn Krakkaborg