Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Innri endurskoðandi

Auglýst er laust til umsóknar starf innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar.

Innri endurskoðandi starfar í umboði borgarráðs og í beinum tengslum við æðstu stjórnendur borgarinnar. Innri endurskoðandi stýrir Innri endurskoðun og ráðgjöf hjá Reykjavíkurborg er annast innri endurskoðun og veitir óháða og hlutlæga staðfestingu og ráðgjöf sem ætlað er að vera virðisaukandi og bæta rekstur Reykjavíkurborgar og samstæðu.

Innri endurskoðun og ráðgjöf sinnir innri endurskoðun fyrir A hluta Reykjavíkurborgar í umboði borgarráðs og ber ábyrgð á innri endurskoðun innan samstæðu Reykjavíkurborgar. Innri endurskoðun og ráðgjöf sinnir jafnframt og hefur eftirlit með innri endurskoðun fyrir B hluta félög í samræmi við samþykkt borgarráðs, almenna eigendastefnu Reykjavíkurborgar og á grundvelli samkomulags við stjórnir dótturfélaga. Innri endurskoðun og ráðgjöf fer einnig með fjármála- og stjórnsýslueftirlit hjá Reykjavíkurborg í umboði borgarráðs.

Launakjör innri endurskoðanda heyra undir ákvörðun kjaranefndar Reykjavíkurborgar. Innri endurskoðandi er engum háður í störfum sínum og nýtur faglegs sjálfstæðis gagnvart allri stjórnsýslu borgarinnar þó að hann heyri stjórnskipulega undir borgarráð. Um störf hans gilda reglur um réttindi og skyldur æðstu stjórnenda Reykjavíkurborgar. Ráðið er í starf innri endurskoðanda af borgarráði til fimm ára í senn.

Ábyrgðarsvið

  • Fjármála- og stjórnsýslueftirlit hjá Reykjavíkurborg í umboði borgarráðs.
  • Staðfestingarvinna og ráðgjöf á sviði innra eftirlits, stjórnarhátta og áhættustýringar.
  • Mat á stjórnarháttum og eftirlitsumhverfi innan Reykjavíkurborgar.
  • Ráðgjöf til borgarráðs og stjórnenda Reykjavíkurborgar og félaga innan samstæðu Reykjavíkurborgar.
  • Rekstur vefgáttar fyrir móttöku ábendinga um lögbrot eða ámælisverða háttsemi í starfsemi Reykjavíkurborgar.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Fagvottun sem innri endurskoðandi eða löggilding í endurskoðun.
  • Víðtæk þekking og reynsla af innri endurskoðun eða innra eftirliti.
  • Leiðtogahæfileikar og mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og mannaforráðum.
  • Reynsla og þekking af opinberri stjórnsýslu.
  • Reynsla af úttektarvinnu og áætlanagerð.
  • Framsýni, metnaður og frumkvæði.
  • Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og ensku.

Við hæfnismatið verður tekið mið af hæfniskröfum og af alþjóðlegu regluverki um innri endurskoðun (e. Internal Auditing Competency Framework, Practice Guide).

Umsjón með ráðningu hefur ráðgjafarfyrirtækið Intellecta. Borgarráð mun skipa þriggja manna ráðgefandi hæfnisnefnd sem mun vinna úr öllum umsóknum í samráði við borgarráð. Intellecta mun aðstoða ráðgefandi hæfnisnefnd borgarráðs við ráðningaferlið.

Umsóknarfrestur er til og með 2. mars 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og henni þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar um starfið veita Auður Björgvinsdóttir skrifstofustjóri á mannauðs- og starfsumhverfissviðs Reykjavíkurborgar í gegnum netfangið ([email protected]) og Thelma Kristín Kvaran í gegnum netfangið [email protected].

Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Auglýsing birt13. febrúar 2026
Umsóknarfrestur2. mars 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Löggiltur endurskoðandiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Opinber stjórnsýslaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar