

Húsvættir leita að smið eða vönum iðnaðarmanni í fullt starf
Húsvættir er vaxandi verktaka- og viðhaldsfyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Við tökum að okkur fjölbreytt verk — allt frá viðhaldi, múrverki og málun til klæðninga, þaka og nýsmíði — og leitum nú að góðum liðsmanni í fullt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn smíða- og viðhaldsvinna, múrverk, málun, klæðningar, þök og nýsmíði eftir verkefnastöðu. Vinna á fjölbreyttum verkstöðum á höfuðborgarsvæðinu.
Menntunar- og hæfniskröfur
Lærður smiður (sveinspróf/meistari) eða vanur vinnumaður með reynslu af byggingar- og viðhaldsvinnu. Vandvirkni, áreiðanleiki og stundvísi. Geta unnið bæði sjálfstætt og í teymi. Bílpróf er skilyrði.
Fríðindi í starfi
Fullt starf og næg verkefni allt árið, fjölbreytt og krefjandi vinna, gott og samheldið vinnuumhverfi, laun samkvæmt reynslu og hæfni.
Auglýsing birt13. júní 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Starfstegund
Hæfni
HandlagniHúsasmíðiMálaraiðnMálningarvinnaSjálfstæð vinnubrögðSmíðarVandvirkni
Starfsgreinar
Starfsmerkingar



