
Húsumsjónarmaður í grunnskóla - Suðurnesjabær
Suðurnesjabær auglýsir eftir tveimur kraftmiklum og ábyrgum einstaklingum í fullt starf, annars vegar við Sandgerðisskóla og hins vegar við Gerðaskóla.
Starfið er undir stjórn skólastjóra og felur í sér fjölbreytt verkefni, þar sem viðkomandi ber ábyrgð á umsjón og öryggi skólahúsnæðis, sinnir viðhaldi og tekur á móti aðföngum fyrir skólann. Í starfinu felast regluleg samskipti við stjórnendur, skipulags- og umhverfissvið og Umhverfismiðstöð. Lögð er áhersla á að umsækjandi hafi áhuga á velferð og menntun barna og sé tilbúinn að taka þátt í þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og annað starfsfólk.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Sér um að húsnæði, búnaður og lóð á skólasvæði sé ávallt aðlaðandi og í fullnægjandi ástandi
- Umsjón með viðhaldi og er tengiliður við iðnaðarmenn í samstarfi við skipulags- og umhverfissvið
- Hefur umsjón með sorpflokkun, snjómokstri og hálkueyðingu á skólasvæðinu og er tengiliður við Umhverfismiðstöð vegna þeirra verkefna.
- Umsjón og eftirlit með kerfum og búnaði skólans
- Sér um að skólahúsnæði sé opið við upphaf skóladags, kl. 7:30
- Verkstjórn og gæðaeftirlit með ræstingum
- Tekur þátt í því uppeldisstarfi sem fram fer innan skólans þar sem áhersla er lögð á vellíðan nemenda
- Sinnir öðrum þeim verkefnum sem skólastjóri kann að fela honum, enda samrýmist þau starfssviði hans, s.s. tilfallandi eftirlit utan hefðbundins vinnutíma.
Hæfniskröfur:
- Gerð er krafa um verkkunnáttu og starfsreynslu sem nýtist í starfi
- Iðnmenntun er kostur
- Hefur áhuga á starfi með börnum og á auðvelt með samskipti við bæði börn og fullorðna
- Tölvukunnátta
- Þekking á tæknibúnaði og tölvukerfum er kostur
- Reynsla af verkstjórn er kostur
- Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum og þjónustulund
- Skipulagshæfileikar og snyrtimennska
- Góð íslenskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli.
Ráðið verður í stöðuna sem fyrst, við upphaf nýs skólaárs.
Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 25. júní n.k.
Nánari upplýsingar um starfið í Gerðaskóla veitir Jón Ragnar Ástþórsson, skólastjóri Gerðaskóla, [email protected]
Nánari upplýsingar um starfið í Sandgerðisskóla veitir Bylgja Baldursdóttir, skólastjóri Sandgerðisskóla, [email protected]
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf ásamt upplýsingum um umsagnaraðila og annað er málið varðar.
Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Íslenska










