Festi
Festi
Festi

Hópstjóri innheimtu

Festi leitar að einstakling til að leiða innheimtu fyrir Festi og öll dótturfélög þess. Um er að ræða framtíðarstarf í skemmtilegu umhverfi.

Festi er eignarhaldsfélag leiðandi fyrirtækja sem gegna mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi. Starfsemi móðurfélagsins snýr að fjárfestingum og stoðþjónustu við dótturfélögin, ELKO, Krónuna, N1, Lyfju, Yrki fasteignir og Bakkann vöruhótel.

Helstu verkefni

  • Hönnun og yfirsjón með innheimtuferlum
  • Dagleg innheimtustörf
  • Þátttaka í umbótum og einföldun verkferla
  • Samskipti við viðskiptamenn og þjónustuaðila
  • Skýrslugerð og upplýsingagjöf

Hæfnis- og menntunarkröfur

  • Reynsla af innheimtustörfum eða sambærilegum verkefnum er skilyrði
  • Færni og lipurð í mannlegum samskiptum
  • Jákvætt viðmót
  • Háskólanám í viðskiptafræði, lögfræði eða önnur sambærilegt menntun
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Festi leggur áherslu á að skapa spennandi og líflegt starfsumhverfi þar sem hæfileikar einstaklingsins fá að njóta sín. Starfsfólki er veittur sveigjanleiki í starfi og lögð er áhersla á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Velferð starfsfólks er í fyrirrúmi og er ýmis konar heilsueflandi þjónusta í boði í velferðarpakka félagsins. Starfsfólk fær góð kjör á vörum og þjónustu hjá ELKO, Krónunni, Lyfju og N1.

Nánari upplýsingar veitir Andri Kristinsson, forstöðumaður innheimtu og fjárstýringar, [email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2026.

Auglýsing birt30. janúar 2026
Umsóknarfrestur10. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar