

Hjúkrunarfræðingur í skaðaminnkandi verkefni Rauða krossins
Hjúkrunarfræðingur í skaðaminnkandi verkefni – Ylja og Frú Ragnheiður - 80 % - 100 % starf
Viltu vinna mikilvægt og gefandi starf sem hefur bein áhrif á líf fólks í viðkvæmri stöðu?
Rauði krossinn á höfuðborgarsvæðinu leitar að hjúkrunarfræðingi í hluta eða fullt starf í nýtt skaðaminnkunarverkefni félagsins, neyslurýmið Ylju sem og Frú Ragnheiði.
Þetta er einstakt tækifæri fyrir hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á skaðaminnkun, mannréttindum og notendamiðaðri heilbrigðisþjónustu.
Hvað er Ylja?
✔️ Ylja er fyrsta neyslurýmið á Íslandi – skaðaminnkandi úrræði fyrir einstaklinga sem nota vímuefni í æð.
✔️ Markmið verkefnisins er að auka lífsgæði og bæta heilsufar þeirra sem nota reglubundið vímuefni í æð.
✔️ Neyslurými eru lagalega vernduð umhverfi þar sem notendur 18 ára og eldri geta neytt ávana- og fíkniefna undir eftirliti sérhæfðs starfsfólks, með fyllstu hreinlætis-, öryggis- og sýkingavörnum.
✔️ Þessi úrræði eru starfrækt víða um heim og hafa sýnt fram á mikinn samfélagslegan ávinning bæði fyrir einstaklingana sjálfa og samfélagið í heild.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita heilbrigðisþjónustu í neyslurými Ylju með áherslu á skaðaminnkun og heilsuvernd
- Standa vaktina í neyslurými ásamt starfsfólki
- Þróa og innleiða verklagsreglur um heilbrigðisverklag fyrir neyslurými í samstarfi við hjúkrunarfræðing skaðaminnkunarteymisins
- Veita fræðslu, stuðning og ráðgjöf til einstaklinga í jaðarstöðu
- Önnur tilfallandi verkefni tengd skaðaminnkun
Hvað er Frú Ragnheiður?
Frú Ragnheiður er færanlegt skaðaminnkunarúrræði sem hefur það að markmiði að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og óafturkræfan skaða sem og að auka lífsgæði og bæta heilsufar einstaklinga sem nota vímuefni í æð. Þjónustan er lágþröskulda og veitt í nærumhverfi einstaklinga með sérútbúnum bíl, þar sem boðið er upp á lágþröskulda heilbrigðisþjónustu, skaðaminnkandi þjónustu og sálfélagslegan stuðning.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Stuðningur og eftirfylgd með sjálfboðaliðum og skipulag vakta fyrir sjálfboðaliða í Frú Ragnheiði
- Umsjón með daglegri starfsemi Frú Ragnheiðar
- Samskipti og sálfélagslegur stuðningur við þjónustuþega
- Fræðsla, kynning og þjálfun nýrra sjálfboðaliða
- Skráning og greining gagna fyrir mælikvarða og skýrslugerð
- Beita hugmyndafræði skaðaminnkunar í allri vinnu og þjónustu við þjónustuþega
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur og eiginleikar sem við leitum að
- Hjúkrunarfræði
- Góð þekking á hugmyndafræði skaðaminnkunar er skilyrði
- Góð samskiptahæfni og reynsla í vettvangsstarfi er kostur
- Þekking á málefnum og starfi Rauða krossins er kostur
- Hæfni til að vinna í notendamiðaðri heilbrigðisþjónustu
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál eru kostur
Hvað býður Rauði krossinn upp á?
🚴 Samgöngustyrkur – Stuðningur við vistvænar samgöngur
🏋️ Líkamsræktarstyrkur – Heilsueflandi stuðningur
📅 Umsóknarfrestur: Umsóknir eru yfirfarnar jafnóðum – viðkomandi þarf að hefja störf sem fyrst
Við hvetjum fólk af öllum kynjum til að sækja um.
Aðeins er tekið á móti umsóknum í gegnum Alfreð – við förum yfir umsóknir jafnóðum og þær berast.
📩 Nánari upplýsingar:
Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri
✉️ [email protected]













