Grýtubakkahreppur
Grýtubakkahreppur
Grýtubakkahreppur

Hjúkrunarfræðingur / hjúkrunarnemi – sumarafleysing á Grenilundi, Grenivík

Grenilundur á Grenivík óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing eða hjúkrunarnema í sumarafleysingu.
Starfshlutfall getur verið allt frá 40% til 100% eða samkvæmt samkomulagi og hentar starfið vel þeim sem vilja starfa í litlu og persónulegu umhverfi með fjölbreyttum verkefnum.

Grenilundur er heimilislegt hjúkrunarheimili fyrir 10 íbúa, þar sem rík áhersla er á jákvæðan starfsanda, góða samvinnu og hlýlegt umhverfi. Nýir starfsmenn fá góða aðlögun og stuðning frá reyndu starfsfólki.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn hjúkrun á sviði öldrunar í nánu samstarfi við lítið og samheldið teymi.
  • Stuðningur við íbúa og fjölskyldur þeirra með fagmennsku, virðingu og umhyggju að leiðarljósi.
  • Þátttaka í daglegri umönnun og skipulagi þjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun.
  • Starfsleyfi landlæknis (ef við á).
  • Staðfesting á námi fyrir hjúkrunarnema.
  • Reynsla af hjúkrun er kostur.
  • Góð samskiptahæfni, jákvætt viðhorf og sjálfstæð vinnubrögð.
  • Áreiðanleiki og frumkvæði.
  • Íslenskukunnátta er skilyrði
Fríðindi í starfi
  • Aðallega dagvaktir á virkum dögum, ásamt bakvöktum.
  • Möguleiki á sveigjanlegu eða breytilegu starfshlutfalli.
Auglýsing birt16. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Túngata 2, 610 Grenivík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar