Styrkás
Styrkás
Styrkás

Gjalkeri

Styrkás leitar að nákvæmum og þjónustulunduðum einstaklingi í stöðu gjaldkera. Gjaldkeri Styrkás vinnur þvert á fyrirtækin í samstæðunni og er hluti af fjármálasviði Styrkás. Leitað er að aðila sem hefur reynslu af slíku starfi og hefur vilja til að leita að skilvirkum lausnum og hagnýta tæknina í sínum daglegu störfum.

Um Styrkás

Styrkás hf. er rekstrarfélag sem var stofnað árið 2022. Skeljungur, Klettur, Stólpi, Hreinsitækni og HRT þjónusta eru dótturfélög Styrkás og saman mynda þessi félög samstæðu Styrkás. Það er stefna félagsins að verða leiðandi þjónustufyrirtæki á fyrirtækjamarkaði með styrk til að þjónusta innviða- og atvinnuvegafjárfestingu á Íslandi.

Markmið Styrkáss er að byggja ofan á sterkar stoðir með innri og ytri vexti kjarnasviða, sem eru orka og efnavara, tæki og búnaður, eignaumsýsla og leigustarfsemi og umhverfisþjónusta og iðnaður. Styrkás stefnir að skráningu í kauphöll á öðrum ársfjórðungi 2027.

Lögð er áhersla á að byggja upp hvetjandi vinnustaðamenningu þar sem starfsfólk fær tækifæri til að þróast og njóta góðs aðbúnaðar. Gildi samstæðunnar eru frumkvæði, samvinna og að vera tilbúin í breytingar. Þau endurspeglast í daglegu starfi starfólks og við hvetjum til samstarfs þvert á öll félög samstæðunnar, því við vitum að við náum meiru fram sem ein heild.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Framkvæma útgreiðslur fyrir öll félög samstæðunnar
  • Halda yfirlit yfir greiðsluskyldu og eindaga og tryggja tímanlega greiðslur til lánadrottna, starfsmanna og skattayfirvalda
  • Samhæfa greiðslur milli félaga til að tryggja samræmi
  • Mánaðarlegar skýrslur/yfirlit um fjárhagsstöðu
  • Úrlausn frávika í bankaafstemmingum
  • Taka þátt í sjóðsstreymisáætlunum og áætlanagerð
  • Samskipti við banka og endurskoðendur félaganna í samstæðunni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • A.m.k. 3-5 ára reynsla af bókhaldi, gjaldkerastörfum eða sambærilegum störfum
  • Skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Reynsla við að vinna fyrir samstæðu kostur
  • Þjónustulund og sveigjanleiki til að þjónusta ólík félög innan samstæðu
  • Reynsla af Business Central
Auglýsing birt27. maí 2026
Umsóknarfrestur9. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Köllunarklettsvegur 1, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Gjaldkeri
Starfsgreinar
Starfsmerkingar