
Birta lífeyrissjóður
Birta lífeyrissjóður er fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins miðað við hreina eign til greiðslu lífeyris. Starfsfólk Birtu lífeyrissjóðs er kjarninn í starfsemi sjóðsins og rík áhersla er lögð á að búa vel að starfsfólki. Starfsumhverfi sjóðsins einkennist af ábyrgð, fagmennsku, heiðarleika og vilja til að öðlast og viðhalda trausti sjóðfélaga. Hjá sjóðnum starfa um 30 starfsmenn, samhentur og metnaðarfullur hópur. Birta lífeyrissjóður býður upp á góða starfsaðstöðu og starfsumhverfi og lögð er áhersla á jafnrétti og jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Gjaldkeri
Birta lífeyrissjóður leitar að öflugum og nákvæmum einstaklingi til að gegna stöðu gjaldkera lífeyrissjóðsins. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem viðkomandi er í miklum samskiptum við fjármálateymi sjóðsins ásamt starfsfólki annarra deilda. Við leitum að nákvæmum, töluglöggum einstaklingi sem býr yfir góðri samskiptahæfni og ríkri þjónustulund.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Dagleg umsýsla bankareikninga og greiðsluflæðis innlendra og erlendra aðila
- Greiðsla reikninga
- Önnur verkefni er tengjast lánaumsýslu og fleiru
- Þátttaka í umbótaverkefnum sem stuðla að betri þjónustu og rekstri
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða áunnin reynsla sem nýtist í starfi
- Reynsla af gjaldkerastörfum eða svipuðum verkefnum er æskileg
- Góð kunnátta í Excel og reynsla af bókhaldskerfum (t.d. Business Central eða öðru sambærilegu)
- Mjög góð tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér ný kerfi
- Gott vald á íslensku og ensku
Auglýsing birt26. júní 2025
Umsóknarfrestur9. júlí 2025
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Sundagarðar 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur á fjármálasviði
First Water

Sérfræðingur á skrifstofu framkvæmdastjórnar
Amaroq Minerals Ltd

Rekstrargreining og vörustjórnun (Operations & Purchasing Controller)
Nespresso á Íslandi

Photography Gallery - Sales Consultant
Iurie I Fine Art

Sérfræðingur í birgðastýringu
Krónan

Sérfræðingur á fjármálasviði
Terra hf.

Sérfræðingur á vörusviði
Lyfja

Bókari
Heimar

Endurskoðun og uppgjör
ODT

Aðalbókari
Rauði krossinn á Íslandi

Looking for a Worker
Asahi sushi & wok ehf.

Sales & Marketing Lead
Alda