
Garnes Data leitar að öflugum liðsfélaga í upplýsingatækni
Við leitum að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á upplýsingatækni, hefur gaman af því að leysa vandamál og nýtur þess að vinna með fólki. Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref í faginu eða hefur áralanga reynslu skiptir mestu máli að þú sért þjónustulundaður, sjálfstæður og tilbúinn að takast á við fjölbreytt verkefni.
Garnes Data sér um rekstur og þjónustu upplýsingatæknikerfa fyrir fyrirtæki um allt land. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og náið samstarf við viðskiptavini okkar þannig að upplýsingatæknin styðji sem best við þeirra daglega rekstur.
Helstu verkefni
- Þjónusta við notendur og fyrirtæki, bæði í fjarþjónustu og á staðnum
- Uppsetning, viðhald og bilanagreining á tölvum og vinnustöðvum
- Rekstur og viðhald netkerfa og þráðlausra lausna
- Uppsetning og þjónusta símkerfa
- Umsjón með Microsoft 365 umhverfum
- Umsjón með afritunarlausnum
- Rekstur og viðhald Windows Server umhverfa
- Uppsetning og innleiðing nýrra lausna hjá viðskiptavinum
Reynsla og þekking
- Góð þekking á Windows stýrikerfum
- Þekking á Microsoft 365, Entra ID og Azure
- Þekking á Windows Server og Hyper-V
- Þekking á netkerfum og UniFi lausnum
- Þekking á 3CX símkerfum er kostur
- Reynsla af upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu er kostur
Hæfniskröfur
- Góð þjónustulund og samskiptahæfni
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Mikill áhugi á upplýsingatækni og vilji til að læra
- Geta til að vinna bæði sjálfstætt og í teymi
- Gott vald á íslensku og ensku
- Gilt ökuskírteini (eigin bíll er kostur)
Við bjóðum
- Starf í vaxandi fyrirtæki
- Fjölbreytt og krefjandi verkefni
- Mikið sjálfstæði í starfi
- Gott og samheldið teymi
- Tækifæri til að þróast í starfi
- Nýtt og glæsilegt húsnæði að Silfursmára 12 í Kópavogi
Um Garnes Data og Garnes Gruppen
Garnes Data er hluti af Garnes Gruppen, norskri tæknisamstæðu sem starfar á sviði upplýsingatækni, öryggislausna og stafrænna lausna.
Sem hluti af Garnes Gruppen höfum við aðgang að öflugu fagumhverfi, víðtækri sérfræðiþekkingu og nánu samstarfi við reynslumikið starfsfólk í Noregi og víðar.
Enska
Íslenska
Norska






