

Garðaskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa
Garðaskóli í Garðabæ er unglingaskóli þar sem rúmlega 600 nemendur stunda nám í 8.-10. bekk. Í skólanum er lögð áhersla á að starfsfólk sérhæfi sig í vinnu með unglingum og kennslu faggreina. Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni: www.gardaskoli.is.
Stuðningsfulltrúi í Garðaskóla vinnur með nemendum í kennslustundum, frímínútum og tómstundastarfi. Hann fylgist með hegðun, hlustar á og aðstoðar nemendur, leiðbeinir þeim í samskiptum og námi. Stuðningsfulltrúar vinna undir stjórn deildarstjóra námsvers og í nánu samráði við kennara, stjórnendur, starfsfólk félagsmiðstöðvarinnar Garðalundar og fleira starfsfólk. Við leitum að hressum aðila sem er tilbúinn að setja sig inn í unglingasamfélagið og taka þátt í að efla það innan frá.
- Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og virka þátttöku í skólastarfi
- Vinna eftir áætlun sem kennari hefur útbúið
- Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
- Leitast við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustofu
- Íslenskukunnátta á stigi B2 skv. samevrópskum tungumálaramma
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og lausnamiðað viðhorf
- Menntun sem nýtist í starfi er kostur
- Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum er kostur












