
Arna
Arna hóf starfssemi árið 2013 og býður í dag upp á fjölbreytt úrval af mjólkurvörum fyrir innanlandsmarkað en einnig er vaxandi útflutningur hjá fyrirtækinu. Mjólkurvinnslan er starfrækt í Bolungarvík en einnig er skrifstofa í Tunguhálsi í Reykjavík. Fjöldi starfsmanna eru 35 talsins, flestir í Bolungarvík. Fyrirtækið hefur frá upphafi sérhæft sig í mjólkurvörum án laktósa. Undanfarna mánuði hefur staðið yfir mikil vinna í tengslum við frekari uppbyggingu mjólkurvinnslunar í Bolungarvík. Við erum m.a. að uppfæra tækjabúnað og gera vinnsluna skilvirkari. Á sama tíma er vörumerkið sjálft og umbúðir í breytingarfasa. Það eru því ,,spenandi” tímar framundan hjá okkur 😊
Gæðastjóri í Bolungarvík
Mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík óskar eftir að ráða gæðastjóra til starfa.
Við leitum að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi með reynslu eða þekkingu á gæðamálum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða áframhaldandi þróun gæðakerfis Örnu
- Viðhalda, uppfæra og tryggja eftirfylgni með verklagsreglum, ferlum og gæðaskjölum
- Tryggja að starfsemi fyrirtækisins uppfylli kröfur laga og viðeigandi staðla
- Skipuleggja innri og ytri úttektir
- Vera tengiliður gagnvart eftirlitsaðilum
- Framkvæma gæðamælingar og greina niðurstöður
- Fræðsla og stuðningur við starfsfólk og stuðla að öflugri gæðamenningu
- Stýra og taka þátt í stöðugum umbótum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem að nýtist í starfi
- Reynsla af gæðastjórnun og innleiðingu gæðakerfa
- Þekking á örverufræði og örverumælingum er kostur
- Nákvæm og öguð vinnubrögð
- Sjálfsstæði og frumkvæði
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
Auglýsing birt12. maí 2026
Umsóknarfrestur25. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Hafnargata 80, 415 Bolungarvík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar


