

Fyrirtækjaráðgjafi á Akureyri
Við leitum að sóknardrifnum og þjónustumiðuðum fyrirtækjaráðgjafa til að ganga til liðs við teymið okkar í útibúi Arion banka á Akureyri.
Í útibúinu okkar á Akureyri starfar samhentur hópur sem veitir alhliða bankaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki, auk tryggingaþjónustu. Starfið tilheyrir fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviði og hentar vel þeim sem eiga auðvelt með að taka upp símann, eiga virk samskipti við viðskiptavini og hafa brennandi áhuga á að byggja upp traust og farsæl viðskiptasambönd.
Starfið er fjölbreytt og lifandi og felur í sér þjónustu við fyrirtækjaviðskiptavini bankans, bæði hvað varðar út- og innlán, sem og sölu og ráðgjöf tengda öðrum þjónustuþáttum samstæðunnar. Mikil áhersla er lögð á virka sókn í nýja viðskiptavini og uppbyggingu traustra viðskiptasambanda. Í starfinu felst einnig móttaka fyrirtækjaviðskiptavina sem koma í útibúið, auk afgreiðslu þeirra sem leita þjónustu í gegnum miðlægar þjónustuleiðir bankans.
Býrð þú yfir drifkrafti, hefur áhuga á fjármálum og íslensku atvinnulífi? Ef þú hefur gaman af greiningarvinnu sem styður við einfaldari lánaákvarðanir, átt auðvelt með að eiga frumkvæðissamskipti og vilt taka virkan þátt í þróun vara og þjónustu bankans, þá hvetjum við þig eindregið til að sækja um.
-
Áhugi á sölu og þjónustu.
-
Greiningarhæfni og reynsla af útlánamálum er kostur.
-
Góðir skipulags- og samskiptahæfileikar.
-
Reynsla af þjónustu til fyrirtækja mikill kostur.
-
Háskólanám sem nýtist í starfi.
-
Þekking á fjármálum og rekstrarumhverfi fyrirtækja.
-
Ríkur vilji til þess að starfa í árangursdrifnu umhverfi.
