
Fulltrúi Orlofssjóðs
Kennarasamband Íslands auglýsir laust til umsóknar 100% starf fulltrúa í teymi Orlofssjóðs á skrifstofu sambandsins. Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi til að sinna upplýsingagjöf og þjónustu til félagsfólks ásamt öðrum hefðbundnum skrifstofustörfum.
Starfið er fjölbreytt og felur í sér mikilvægt hlutverk við að tryggja faglega og trausta þjónustu við félagsfólk KÍ. Mikilvægt er að viðkomandi hafi mjög góða samskiptahæfni, leggi metnað í að veita góða þjónustu, geti unnið sjálfstætt og í teymi, sýni frumkvæði í starfi og hafi ríkan vilja til að styðja við starfsemi og markmið KÍ.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Upplýsingagjöf og afgreiðsla erinda vegna Orlofssjóðs KÍ.
- Þjónusta í gegnum síma, afgeiðsla fyrirspurna og svörun tölvupósta frá félagsfólki.
- Uppgjör og tilfallandi bókhaldstengd verkefni.
- Utanumhald og uppfærsla bókunarkerfis sjóðsins í samvinnu við framkvæmdastjóra orlofssjóðs.
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og starfsreynsla sem nýtist í starfi, t.d. á sviði verkefnastjórnunar, ferðaþjónustu eða annarrar þjónustu.
- Jákvæðni og rík þjónustulund.
- Ánægja af samskiptum við fólk.
- Reynsla af uppgjörum og að vinna með tölur.
- Hæfni til að starfa sjálfstætt og í teymi.
- Metnaður og sveigjanleiki í starfi.
- Mjög góð hæfni í íslensku og ensku, jafnt í töluðu og rituðu máli.
Auglýsing birt27. maí 2026
Umsóknarfrestur7. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Borgartún 30, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðis- og varahlutamóttöku Ford-Reykjavík
Ford á Íslandi | Brimborg

Starfsmaður í netverslun S4S
S4S Netverslun - Skór.is - AIR.is - Ellingsen.is

Sölu- og þjónustufulltrúi í verkstæðis- og varahlutamóttöku Volvo og Polestar-Reykjavík
Volvo og Polestar á Íslandi | Brimborg

Starfsmaður í þjónustukjarna Ferro Zink
Ferro Zink hf

Þjónustufulltrúi - kjaramál
Verkalýðsfélag Suðurlands

Þjónustufulltrúar á stjórnstöð – hlutastarf á kvöld- og næturvöktum
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.

Vaktstjóri á þjónustuborð í fullt starf!
BAUHAUS slhf.

Vaktstjóri á þjónustuborð - helgarstarf
BAUHAUS slhf.

Afgreiðslu og sölufulltrúi í Reykjavík
Avis og Budget

Framtíðarstarf Vefnaðarvörudeild Vogue.
Vogue

Vörumerkja- og verslunarfulltrúi (hlutastarf)
Dropi ehf

Verkstæðismóttaka
BSB og Synir