Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.
Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf.

Þjónustufulltrúar á stjórnstöð – hlutastarf á kvöld- og næturvöktum

Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. leita að öflugum og þjónustumiðuðum einstaklingum í starf þjónustufulltrúa í stjórnstöð. Um er að ræða hlutastarf á kvöld- og næturvöktum.

Stjórnstöðin gegnir mikilvægu hlutverki í rekstri almenningssamgangna en meginhlutverk hennar er að styðja við vagnstjóra og viðskiptavini. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem öll miða að því að stuðla að öryggi farþega, góðri þjónustu, bregðast við frávikum og tryggja skilvirkt upplýsingaflæði.

Starfið hentar vel fyrir einstaklinga sem hafa tök á að vinna um kvöld og nætur, t.d. með námi eða annarri vinnu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirsýn aksturs og fylgni við áætlanir almenningssamgangna
  • Upplýsingagjöf og þjónusta gagnvart farþegum og vagnstjórum
  • Viðbrögð og eftirfylgni með frávikum í akstri
  • Miðlun upplýsinga til þjónustuvers og notenda um frávik, breytingar og annað sem kemur upp og hefur áhrif á þjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af þjónustörfum er kostur
  • Rík þjónustulund og góð samskiptahæfni
  • Góð hæfni í íslensku og ensku, í ræðu og riti
  • Þekking á gatnakerfi höfuðborgarsvæðisins
  • Lausnamiðuð nálgun, skipulag og ábyrgð
Auglýsing birt26. maí 2026
Umsóknarfrestur8. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hafnarstræti 7, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar