Félagsmiðstöðin Garðalundur
Félagsmiðstöðin Garðalundur
Félagsmiðstöðin Garðalundur

Frístundaleiðbeinendur óskast við Garðalund

Garðalundur óskar eftir að ráða frístundaleiðbenendur til starfa. Hlutverk frístundaleiðbeinenda er að taka þátt í skipulagningu og framkvæmd starfsemi Garðalundar. Garðalundur er félagsmiðstöð staðsett í Garðaskóla þar sem unglingar á aldrinum 13-16 ára geta varið frítíma sínum í öruggu umhverfi. Garðalundur vinnur út frá jafnréttishugsjónum og stuðlar að tilfinninga- og félagsþroska ungmenna í gegnum tómstundir. Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir vöktum í félagsmiðstöðinni Garðalundi
  • Skipuleggur og mótar frístundastarf fyrir unglinga þar sem höfð eru að leiðarljósi uppeldis- og forvarnamarkmið
  • Sækir fræðslu í samráði við annað starfsfólk sviðsins
  • Sækir viðburði með unglingum á vegum félagsmiðstöðvarinnar
  • Sér um samfélagsmiðla Garðalundar t.a.m. Instagram og Discord
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun sem nýtist í starfi en háskólamenntun á sviði uppeldis-, tómstunda- og/eða félagsmálafræði eða sambærileg uppeldismenntun er mikill kostur
  • Reynsla af starfi með ungmennum er nauðsynleg og þekking á málaflokknum æskileg
  • Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Enskukunnátta á stigi B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Þekking á umhverfi samfélagsmiðla og helstu forrita til efnissköpunar
  • Umsækjandi þarf að vera orðinn 20 ára gamall og hafa hreint sakavottorð
  • Snyrtimennska, góð samskiptahæfni og rík þjónustulund
  • Heiðarleiki,stundvísi umburðalyndi og að vera góð fyrirmynd
Auglýsing birt4. júní 2025
Umsóknarfrestur18. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Vífilsstaðav.Flataskó , 210 Garðabær
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar