

Fréttamenn - sumarstörf
Fréttastofa RÚV flytur fréttir í útvarpi, sjónvarpi og á vefnum allan sólarhringinn alla daga ársins og færir landsmönnum nýjustu tíðindi og fréttaskýringar af innlendum og erlendum vettvangi.
Fréttastofan leitar að öflugu sumarafleysingafólki í 100% störf á vöktum. Störfin felast í að afla frétta og miðla þeim, á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni, í útvarpi, sjónvarpi og á www.ruv.is. Við leitum að metnaðarfullu og sjálfstæðu fólki með fjölbreyttan bakgrunn, sem á auðvelt með að vinna í hópi, hefur góða framsögn og er vel ritfært. Hér er kraftmikið, skapandi og metnaðarfullt umhverfi þar sem fjölbreyttur hópur fréttafólks með mikla reynslu og þekkingu starfar.
Við leitum að starfsfólki til að starfa á starfsstöðvum í Reykjavík og á Akureyri.
RÚV starfar í almannaþágu og hefur það hlutverk að vekja, virkja og efla. Öflugt og samhent starfsfólk RÚV rýnir samfélagið, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.