

Aðstoðardagskrárstjóri sjónvarps
RÚV leitar að öflugum aðstoðardagskrárstjóra sjónvarps sem hefur góða þekkingu á dagskrárgerð, dagskrársetningu, skýra sýn á gæði sjónvarpsefnis og áhuga á þróun þess og miðlun.
Aðstoðardagskrárstjóri tekur virkan þátt í stefnumótun, dagskrárákvörðunum og daglegum rekstri dagskrárdeildar sjónvarps. Starfið heyrir undir dagskrárstjóra sjónvarps.
· Þátttaka í mótun og útfærslu dagskrárstefnu, hugmyndavinnu, dagskrárákvörðunum og áætlanagerð.
· Samstarf við innlenda og erlenda framleiðendur og efnisbirgja.
· Umsjón með dagskrársetningu og þróun miðlunar á sjónvarpsefni.
· Umsjón með innkaupum á erlendu sjónvarpsefni.
· Aðkoma að innkaupum og framleiðslu á innlendri dagskrárgerð.
· Umsjón með ferlum dagskrársetningar, þátttaka í innleiðingu nýrra dagskrársetningarkerfa og eftirfylgni með framsetningu á efni RÚV á ólíkum miðlum.
· Háskólapróf sem nýtist í starfi.
· Haldbær stjórnunarreynsla og reynsla af verkefnastjórnun.
· Farsæl reynsla af og þekking á dagskrárgerð og framleiðslu sjónvarpsefnis.
· Farsæl reynsla af og þekking á rekstri dagskrárkerfa, ferlum dagskrársetningar og framsetningu efnis á ólíkum miðlum.
· Reynsla af samningagerð og innkaupum á sjónvarpsefni.
· Framúrskarandi samskiptahæfni og hæfni til að leiða samstarf.
· Skipulagsfærni, sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun.
· Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti. Gott vald á ensku.
Íslenska
Enska