Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Framtíðarstarf á Egilsstöðum

Við leitum að jákvæðum og drífandi einstaklingi í þjónustu- og afgreiðslustörf hjá Bílaleigu Akureyrar á starfsstöð okkar við Lagarbraut 4, Egilsstöðum

Þínar þarfir - Okkar þjónusta er okkar slagorð og því leitum við eftir einstaklingi með framúrskarandi þjónustulund.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni í þjónustu og afgreiðslu þar sem enginn dagur er eins. Tilvalið starf fyrir þá sem elska að vinna með fólki og bjóða upp á framúrskarandi þjónustu.

Vinnutími er kl. 8:00-17:00 virka daga og þriðja hver helgi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þjónusta og upplýsingagjöf til viðskipavina
  • Útleiga og móttaka á bílum
  • Ferjanir á bílum
  • Bílaþrif
  • Fjölbreytt tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Bílpróf, réttindi á beinskipta bíla skilyrði
Höldur - Bílaleiga Akureyrar

Höldur ehf. var stofnað árið 1974 og rekur Bílaleigu Akureyrar, stærstu bílaleigu landsins með um 8.000 bíla flota.  Bílafloti leigunnar er bæði stór og fjölbreyttur og hefur fyrirtækið verið leiðandi í kaupum á umhverfisvænum bílum.

Höldur kappkostar að vera framúrskarandi vinnustaður þar sem umhyggja er borin fyrir sérhverjum starfsmanni. Með áherslu á gleði, jafnrétti, gott starfsumhverfi, starfsþróun og góða fyrirtækjamenningu er skapaður eftirsóknarverður vinnustaður.

Auglýsing birt1. nóvember 2025
Umsóknarfrestur9. nóvember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Lagarbraut 4, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar