Stokkur Software
Stokkur Software
Stokkur Software

Framkvæmdastjóri

Eigendur Stokks Software leita að framkvæmdastjóra fyrirtækisins, sem verður 20 ára á næsta ári og var brautryðjandi í þróun appa á Íslandi.

Í dag er Stokkur dótturfélag Alfreðs ehf. og sinnir fjölbreyttum verkefnum fyrir fyrirtæki og stofnanir á sviði hugbúnaðarþróunar.

Stokkur er 10 manna vinnustaður og deilir húsnæði og þekkingu með Alfreð í Akralind í Kópavogi. Við leitum að framkvæmdastjóra sem hefur bakgrunn og reynslu til að leiða hugbúnaðarhús til vaxtar og viðgangs á spennandi tímum upplýsingatækni og gervigreindar.

Viðkomandi þarf að hafa góða samskiptahæfileika, þekkingu og innsýn í tækniheiminn og að eiga auðvelt með að kynna og selja þjónustu fyrirtækisins.

Við lofum góðum og skapandi vinnustað, hæfileikaríku samstarfsfólki og fjölbreyttum verkefnum.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Anna Katrín Halldórsdóttir á [email protected].

Auglýsing birt4. ágúst 2026
Umsóknarfrestur18. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Akralind 8, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar