
Fræðsluaðilar í skólum
Lyfjaeftirlit Íslands/Anti-Doping Iceland leitar að öflugum einstaklingum til að ganga til liðs við fræðsluteymi Lyfjaeftirlitsins og sjá um að heimsækja skóla og fræða ungmenni um skaðsemi ólöglegra frammistöðubætandi efna, efla forvarnir og tala fyrir mikilvægi heilinda (e. integrity) í íþróttum.
Starfið felst í því að halda lifandi fyrirlestra fyrir nemendur, skapa opið samtal og vekja áhuga á heilindum og heilsu í íþróttum sem og samfélaginu almennt.
Helstu verkefni og markmið:
- Halda fyrirlestra í efstu bekkjum grunnskóla og í framhaldsskólum
- Fræða ungmenni um áhættu og afleiðingar ólöglegra frammistöðubætandi efna
- Fjalla um áhrif samfélagsmiðla á líkamsímynd
- Ræða um heilbrigðar leiðir til að ná árangri
- Efla skilning á heilindum í íþróttum og mikilvægi hreinna íþrótta og líkamsræktar
Hæfniskröfur
- Afburða hæfni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af því að tala fyrir framan ungt fólk (reynsla af kennslu-, þjálfun- eða fyrirlestrum er kostur)
- Brennandi áhugi á lýðheilsumálum og heilindum í íþróttum
- Framúrskarandi hæfni í íslensku, í rituðu og töluðu máli
- Mjög góð kunnátta í ensku
- Sjálfstæð vinnubrögð, fagmennska og góð framkoma
- Þekking á íþróttahreyfingunni er kostur
Við leitum að einstaklingi sem:
- Getur miðlað flóknum upplýsingum á skýran og aðgengilegan hátt
- Hefur sterka nærveru og nær athygli áhorfenda
- Brennur fyrir forvörnum og jákvæðum samfélagslegum áhrifum
- Er jákvæð fyrirmynd og á auðvelt með að tengjast ungu fólki
Starfið felur í sér að heimsækja skóla samkvæmt fræðsluáætlun en viðkomandi yrði hluti af fræðsluteymi sem heimsækir skóla á dagvinnutíma. Viðkomandi fá þjálfun og kennslu um efni fyrirlestranna.
Starfið er hlutastarf og fer framkvæmd og vinnuframlag fram eftir samkomulagi.
Skilyrði er að viðkomandi hafi náð 25 ára aldri.
Umsóknum þarf að fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf. Nánari upplýsingar um starfið veitir Birgir Sverrisson, framkvæmdastjóri, í gegnum netfangið [email protected].
Íslenska
Enska







