Frístundamiðstöðin Brúin (Ársel/Gufunesbær)
Frístundamiðstöðin Brúin (Ársel/Gufunesbær)

Forstöðumaður - frístundaheimilið Simbað

Frístundamiðstöðin Brúin auglýsir starf forstöðumanns í frístundaheimilinu Simbað laust til umsóknar.

Frístundaheimilið Simbað er starfrækt undir frístundamiðstöðinni Brúnni sem er meðal annars með tíu frístundaheimili í Árbæ, Grafarholti og Grafarvogi.

Frístundamiðstöðin Brúin og frístundaheimilið Simbað óska eftir að ráða metnaðarfullan og áhugasaman einstakling með menntun og reynslu sem nýtist í starfi. Markmið starfsins er að veita 6 – 9 ára börnum og foreldrum þeirra heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi starfsins eru höfð að leiðarljósi. Tilgangur starfsins er að stuðla að auknum félagsþroska barna með áherslu á aukið sjálfstæði, ábyrgð og virkni þeirra í starfi ásamt mikilvægi heilbrigðs lífsstíls.

Frístundaheimilið Simbað er staðsett við Hamraskóla, Dyrhömrum 9, 112 Reykjavík.

Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir börn á aldrinum 6 – 9 ára.
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi.
  • Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
  • Samskipti og samstarf við foreldra og starfsfólk skóla.
  • Starfsmannamál.
  • Framkvæmd og skipulag starfsins í samvinnu við deildarstjóra, starfsfólk og börn út frá viðmiðum og starfsreglum SFS.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólapróf á sviði uppeldismenntunar, s.s. tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun.
  • Meistarapróf á sviði uppeldismenntunar eða stjórnunar, eða mikil starfs- og stjórnunarreynsla á viðkomandi sérfræðisviði.
  • Reynsla af starfi með börnum.
  • Reynsla af félags- og tómstundastarfi.
  • Reynsla af stjórnun.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Skipulags og stjórnunarhæfileikar.
  • Góð færni í samskiptum.
  • Almenn tölvu og samskiptamiðla kunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta.
Auglýsing birt29. maí 2025
Umsóknarfrestur11. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dyrhamrar 9, 112 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar