
Golfskálinn
Golfskálinn er golfverslun og ferðaskrifstofa sem leggur mikla áherslu á góða þjónustu, vandaðar vörur og gott verð.

Forstöðumaður ferðaþjónustu
Viltu leiða spennandi uppbyggingu í golfferðaþjónustu?
Golfskálinn leitar að öflugum forstöðumanni ferðaþjónustu.
Golfskálinn er leiðandi fyrirtæki á sviði golfferða og golfverslunar á Íslandi. Við bjóðum bæði einstaklingum og hópum upp á vandaðar golfferðir til vinsælla áfangastaða í Evrópu og víðar. Starfsemin er í örum vexti og nú leitum við að drífandi einstaklingi til að leiða og þróa ferðaþjónustuhluta fyrirtækisins með okkur.
Við leitum að forstöðumanni ferðaþjónustu í 100% framtíðarstarf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hönnun og skipulagning golfferða frá A til Ö (val á flugi, áfangastöðum, fararstjórum, golfkennurum o.fl.).
- Umsjón með framkvæmd golfferða í samvinnu við fararstjóra og samstarfsaðila.
- Samskipti og samningar við birgja og samstarfsaðila (hótel, flugfélög, rútufyrirtæki, fararstjórar, golfkennarar o.fl.).
- Bókanir, umsýsla og svörun fyrirspurna frá viðskiptavinum (tölvupóstur, símtöl, samfélagsmiðlar).
- Viðhald á bókunarkerfum og upplýsingagjöf til viðskiptavini.
- Eftirfylgni með upplifun viðskiptavina og umbætur byggðar á endurgjöf.
- Þróa verklag og ferla sem auðvelt verður að skala upp þegar fleiri starfsmenn bætast við.
- Mótun á stefnu og framtíð ferðaþjónustunnar í samvinnu við framkvæmdastjóra og stjórn.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af verkefnastjórnun, skipulagningu ferða eða viðburða er kostur.
- Mikil þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Hæfni til að vinna undir álagi og leysa vandamál hratt og fagmannlega.
- Góð tölvukunnátta og færni í notkun stafrænna samskiptatækja.
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
- Brennandi áhugi og þekking á golfíþróttinni er mikill kostur.
Auglýsing birt20. júní 2025
Umsóknarfrestur13. júlí 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Bíldshöfði 16, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
GolfSölumennskaVerkefnastjórnun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)

Verkefnastjóri
Eimur

Deildarstjóri umbóta og upplýsingamála
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar

Verkefna- og viðburðastjóri menningarmála í Kópavogi
MEKÓ

Verkefnastjóri velferðarþjónustu – Þátttakandi í þróun og árangri
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Verkefnastjóri
Skagi

Travel Agent & Content Coordinator / Ferða- og efnisstjóri
Your Friend In Reykjavik

Rekstrarstjóri íþrótta- og tómstundamála
Hafnarfjarðarbær

Við leitum að metnaðarfullum hótelstjóra
Arnarstapicenter

Verkefnisstjóri á Drangsnesi
Vestfjarðastofa

Framkvæmdastjóri SÍM
SÍM,samband ísl myndlistarmanna

FERÐASKRIFSTOFA - Utanlandsferðir
Ferðaland