Norlandair
Norlandair

Flugvirki

Norlandair leitar eftir öflugum og metnaðarfullum aðila í starf flugvirkja hjá Part-145 viðhaldsverkstæði félagsins á Akureyri. Ráðið verður í fleiri en eina stöðu.

Starfið er fjölbreytt og felur í sér viðhald, bilanagreiningu og viðgerðir á loftförum í samræmi við gildandi reglur, viðhaldsgögn og verklag verkstæðisins. Við leitum að einstaklingi sem hefur faglegan metnað, vinnur vel bæði sjálfstætt og með öðrum og leggur ríka áherslu á öryggi og vönduð vinnubrögð.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Reglubundið og óreglubundið viðhald loftfara
  • Bilanagreining og viðgerðir
  • Framkvæmd skoðana og viðhalds samkvæmt samþykktum viðhaldsgögnum
  • Skráning og frágangur viðhaldsgagna
  • Þátttaka í úrlausn tæknilegra mála
  • Samstarf við aðra flugvirkja, tæknistjóra og aðra starfsmenn verkstæðisins
  • Stuðla að öruggum, faglegum og skilvirkum vinnubrögðum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gilt EASA Part-66 flugvirkjaskírteini
  • Reynsla af viðhaldi loftfara og góðan skilning á þeim kröfum og verklagi sem gilda um viðhald í Part-145 umhverfi
  • Geta til að vinna sjálfstætt eftir viðhaldsgögnum, verklagsreglum og tæknilegum leiðbeiningum
  • Góð hæfni til bilanagreiningar og úrlausnar tæknilegra verkefna
  • Fagleg vinnubrögð, öryggisvitund og gæðamiðað hugarfar
  • Rík færni til samskipta og samstarfs
  • Góð íslensku- og enskukunnáttu í töluðu og rituðu máli og geta til að vinna með tæknileg gögn á ensku
Auglýsing birt21. ágúst 2026
Umsóknarfrestur10. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Akureyrarflugvöllur, 600 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)