
Fjöliðjan vinnu- og hæfingarstaður Akraneskaupstaðar auglýsir sumarstarf
Fjöliðjan vinnu- og hæfingarstaður Akraneskaupstaðar óskar eftir að ráða leiðbeinanda til starfa.
Um er að ræða 100 % stöðugildi í júní, júlí og ágúst.
Vinnutími er frá kl: 08:00 til kl: 16:00.
Nánari upplýsingar um starfið má nálgast hjá:
Ástu Pálu Harðardóttur yfirþroskaþjálfa Fjöliðjunnar í síma 433-1723 og/eða [email protected]
Guðmundi Páli Jónssyni forstöðumanni Fjöliðjunnar í síma 433-1720 og/eða [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
• Veita einstaklingsmiðaðan persónulegan stuðning
• Stuðla að virkri þátttöku í samfélaginu
• Aðstoð við athafnir daglegs lífs
• Aðstoð við atvinnuþátttöku og vinnuverkefni
• Veita einstaklingsmiða þjónustuna og aðlaga hana að breytilegum þörfum og aðstæðum á hverjum tíma.
• Virðing fyrir sjálfræði einstaklinga velferð þeirra ávalt höfð að leiðarljósi.
Hæfinskröfur
• Áhugi á að starfa með fólki
• Sjálfstæði og rík réttlætiskennd
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Jákvæðni og framtaksemi
• Stundvísi og samviskusemi
• Reynsla af störfum með fötluðu fólki er kostur
• Kostur er að viðkomandi búi yfir góðri verkkunnáttu og leiðsagnarhæfni
• Hreint sakavottorð
Íslenska










