Hveragerðisbær
Hveragerðisbær
Hveragerðisbær

Félagsráðgjafi í almennri félagsþjónustu – Vertu hluti af öflugu velferðarteymi Hveragerðisbæja

Velferðarsvið Hveragerðisbæjar óskar eftir metnaðarfullum og lausnamiðuðum félagsráðgjafa til starfa í almennri félagsþjónustu. Leitað er að fagmanneskju sem vinnur af festu, með hlýju og virðingu, og hefur góða innsýn í stöðu einstaklinga og fjölskyldna sem þurfa á stuðningi samfélagsins að halda.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka, mat og úrvinnsla mála sem varða fjárhagsaðstoð, húsnæðismál og aðra félagslega ráðgjöf
  • Stuðningsvinna með einstaklingum og fjölskyldum í viðkvæmri stöðu
  • Eftirfylgd og gerð einstaklingsáætlana í nánu samstarfi við viðkomandi
  • Samvinna við aðrar stofnanir og fagaðila
  • Skráning og skjalavarsla í One System og/eða Navision
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Próf í félagsráðgjöf og gilt starfsleyfi
  • Þekking og/eða reynsla af störfum í sveitarfélagi eða félagsþjónustu er kostur
  • Þekking á viðeigandi löggjöf, sérstaklega lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga
  • Reynsla eða þekking á One System og Navision er kostur
  • Góð samskiptahæfni, fagleg nálgun og lausnamiðuð vinnubrögð
  • Sjálfstæði, ábyrgð og skipulagshæfni
Auglýsing birt23. júní 2025
Umsóknarfrestur15. júlí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Breiðamörk 20, 810 Hveragerði
Fljótsmörk 2, 810 Hveragerði
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Félagsráðgjafi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar