Faxaflóahafnir sf.
Faxaflóahafnir sf.

Faxaflóahafnir leita að matráð hjá viðhaldsverkstæði Faxaflóahafna

Helstu verkefni
Sér um kaffi starfsfólks og framreiðslu á aðkeyptum hádegismat í mötuneyti.
Sér um frágang eftir kaffitíma og máltíðir.
Annast reglulega ræstingu á húsnæði áhaldahúss, fyrir utan verkstæðisrými.
Annast matarpantanir.
Hefur umsjón með því að tæki og búnaður tengt kaffistofu og ræstingu áhaldahúss starfi eðlilega og lætur
yfirverkstjóra vita ef viðgerða/lagfæringa er þörf.
Annast önnur þau störf, sem viðkomandi kunna að vera falin af yfirmanni og falla innan eðlilegs starfsviðs hans

Kröfur til starfsins
Snyrtimennska.
Færni í samskiptum við fólk og fyrirtæki.

Faxaflóahafnir er stærsta höfn landsins þar sem starfa um 80 manns á
starfsstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík, á Akranesi, Grundartanga og í Borgarnesi.
Við viljum vera leiðandi í umhverfis- og öryggismálum en leggjum einnig áherslu
á þróun snjallra lausna og grænar hafnir.
Við leitum að fólki með góða hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði
og sjálfstæði í starfi.

Starfsmaðurinn mun hafa aðstöðu á viðhaldsverkstæði Faxaflóahafna sem er við Fiskislóð 12 í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um störfin gefur J. Snæfríður Einarsdóttir, sviðsstjóri hafnarinnviða; [email protected]
Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna á netfangið [email protected], eigi síðar en sunnudaginn 1. mars n.k.

Auglýsing birt23. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Fiskislóð 12, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar