

Matráður
Stekkjaskóli óskar eftir matráði í 100% starfshlutfall frá og með 1. apríl 2026.
Matráður starfar í nýju og fullkomnu framleiðslueldhúsi skólans. Hann undirbýr og matreiðir máltíðir samkvæmt fyrirmælum yfirmanns í framleiðslueldhúsi. Starfar samkvæmt lögum og reglugerð sem við eiga og samkvæmt stefnu Sveitarfélagsins Árborgar. Matráður er staðgengill yfirmanns í framleiðslueldhúsi.
Í eldhúsinu er eldað fyrir nemendur og starfsmenn skólans en auk þess fyrir Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri, leikskólana Jötunheima og Strandheima, Viss, vinnu- og hæfingarstöð, Vinaminni, dagdvöl fyrir einstaklinga með minnissjúkdóma og Árblik, dagdvöl fyrir eldri borgara. Alls er eldað um 1.000 matarskammtar daglega.
Leitað er að metnaðarfullum, barngóðum og jákvæðum einstaklingi.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Að undirbúa, matreiða, baka og framreiða mat samkvæmt fyrirmælum yfirmanns
- Tekur á móti hráefnum, meðhöndlar það til geymslu, vinnur það fyrir matreiðslu og matreiðir eftir þörfum á viðeigandi hátt
- Að undirbúa mat til flutnings í móttökueldhús
- Stuðla að minni matarsóun
- Þrífa og ganga frá að loknu starfi
- Sinnir þeim verkefnum er varðar eldhús sem yfirmaður felur
- Er staðgengill yfirmanns í framleiðslueldhúsi
- Menntun á sviði matreiðslu
- Reynsla af starfi í mötuneyti eða skólaeldhúsi
- Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta
- Þekking á HACCP gæðakerfi
- Færni í mannlegum samskiptum
Íslenska










