
Farm Technician
Langar þig að prófa eitthvað nýtt?
Arctic Fish leitar að fólki til að starfa við sjóeldi á Vestfjörðum.
Við leitum að almennum starfsmönnum og fólki með skipstjórnar- eða vélstjórnarréttindi til starfa í Patreksfirði, Tálknafirði og Arnarfirði.
Starfið er fjölbreytt og hentar fólki sem hefur gaman af því að vinna utandyra, takast á við ólík verkefni og vera hluti af góðu teymi. Reynsla af fiskeldi er ekki nauðsynleg – það mikilvægasta er að vera duglegur, áreiðanlegur og tilbúinn að læra.
Hvað felst í starfinu?
- Fóðrun og eftirlit með eldisfiski.
- Umsjón með sjókvíum og búnaði.
- Viðhald og önnur verkefni sem fylgja daglegum rekstri.
Hvað bjóðum við?
- 7 daga vinna og 7 daga frí – gott tækifæri til að njóta frítímans.
- Fjölbreytt starf þar sem enginn dagur er alveg eins.
- Tækifæri til að læra nýja hluti og þróast í starfi.
- Stuðning við nám og styrki til íþróttaiðkunar.
Hver passar í hópinn?
Við leitum að fólki sem mætir með jákvætt viðhorf, sýnir frumkvæði og kann vel við að vinna með öðrum. Reynsla af fiskeldi, ökuréttindi og skipstjórnar- eða vélstjórnarréttindi eru kostur en ekki skilyrði.
Vinnutími er kl. 7:00–19:00 á virkum dögum og kl. 7:00–17:00 um helgar, sjö daga samfellt og síðan sjö dagar í frí.
Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um. Umsóknir skulu innihalda ferilskrá (CV) og stutt kynningarbréf.
Umsóknarfrestur er til og með 1. Nóvember 2026.

