

Fagmenntaður pípari óskast til starfa
Búseti leitar að reynslumiklum og lausnamiðuðum einstaklingi
Búseti óskar eftir að ráða löggiltan meistara í pípulögnum til starfa. Félagið vill bæta við í teymi félagsins nákvæmum og faglegum einstaklingi sem þarf að geta unnið vel sjálfstætt og í hópi. Viðkomandi þarf að hafa mikla þekkingu á lagnavinnu, hita- og tæknikerfum og úttektum. Hafa þjónustulund og geta tekið faglegar ákvarðanir á verkstað byggt á viðmiðum Búseta.
Búseti er húsnæðissamvinnufélag sem leggur upp úr faglegu viðhaldi og endurbótum á fasteignasafni sínu sem telur um 1.500 íbúðir. Allar fasteignir félagsins eru staðsettar á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnin eru fjölbreytt og góður starfsandi ríkir hjá félaginu. Viðkomandi mun tilheyra teymi sem saman leitar hagkvæmra leiða hvað varðar fasteignaumsjónina. Lögð er áhersla á vönduð vinnubrögð og langtímahugsun þegar kemur að viðhaldi fasteigna Búseta.
Um er að ræða 100% framtíðarstarf hjá rótgrónu og traustu félagi.
Menntunarkröfur
- Meistararéttindi í pípulögnum
- Löggilding til starfa sem pípari á Íslandi kostur
Hæfniskröfur
- Þekking á hitakerfum og tæknibúnaði fasteigna
- Reynsla af viðhaldi atvinnu- eða íbúðarhúsnæðis
- Hæfni til að lesa teikningar og verklýsingar
- Góð tölvukunnátta og þekking til að vinna í viðhaldskerfum
- Sjálfstæð, skipulögð og vönduð vinnubrögð
- Góð samskiptafærni og þjónustulund nauðsynleg
- Lausnamiðuð hugsun og frumkvæði
- Góð íslensku- og enskukunnátta er skilyrði
Persónulegir eiginleikar
- Áreiðanleiki og stundvísi
- Jákvætt viðmót
- Hæfni til að vinna undir álagi
- Samviskusemi og öryggisvitund
- Hæfni til samstarfs í teymi
Vinnutími og starfsaðstæður
- Dagvinna frá 08:00 til 16:00 (15:00 á föstudögum)
- Útköll geta fylgt starfinu
- Starfið fer einkum fram í íbúðarhúsnæði og tæknirýmum fasteigna
- Í höfuðstöðvum Búseta er mötuneyti þar sem starfsfólk borðar saman í hádeginu
- Starfsmaðurinn hefur bifreið til afnota tengt hlutverkinu
Önnur skilyrði
- Gilt ökuskírteini - B
- Hreint sakavottorð
Íslenska
Enska










