The House of Beauty
The House of Beauty
The House of Beauty

Erum við að leita að þér?

Viltu vinna fjölbreytt og gefandi starf þar sem þú vinnur með heilsu, líkama og vellíðan fólks á hverjum degi?

The House of Beauty er margverðlaunuð heilsu- og líkamsklíník sem hefur sérhæft sig í heilsueflandi meðferðum, verkjastjórnun, sogæðameðferðum, líkamsmótun og húðþéttingu án inngripa.

Við erum að stækka meðferðarteymið okkar og leitum nú að metnaðarfullum, hlýjum og ábyrgum einstaklingum til starfa sem meðferðaraðilar hjá THOB.

Starfið felst í að framkvæma fjölbreyttar meðferðir með öflugri tækni, vinna eftir okkar meðferðarferlum og veita hverjum viðskiptavini faglega og persónulega þjónustu.

Við leggjum mikla áherslu á að finna réttu einstaklingana og sjáum sjálf um alla sérhæfða þjálfun. Allir meðferðaraðilar fara í gegnum ítarlega bóklega og verklega þjálfun hjá THOB Academy og þurfa að standast tilskilin próf áður en störf hefjast.

Fyrri reynsla af meðferðarstarfi eða ákveðin menntun er ekki skilyrði. Við horfum fyrst og fremst til persónulegra eiginleika, áhuga á starfinu, metnaðar og vilja til að læra og þróast.

Við leitum að einstaklingum sem:

  • Eru líkamlega hraustir og almennt með góða orku.
  • Hafa áhuga á heilsu, líkamanum og vellíðan.
  • Eru hlýir og þjónustulundaðir og eiga auðvelt með mannleg samskipti.
  • Eru traustir, ábyrgir og sýna frumkvæði í starfi.
  • Eru samviskusamir og leggja metnað í að vinna vel.
  • Eru fljótir að læra og tilbúnir að tileinka sér okkar aðferðir, tækni og verklag.
  • Eiga auðvelt með að vinna bæði sjálfstætt og sem hluti af teymi.
  • Eru metnaðarfullir og vilja vaxa og þróast í starfi.
  • Eru að leita að hluta- eða fullu starfi til framtíðar.

Starfskjör

Um verktakastarf er að ræða með öflugu launa- og frammistöðukerfi þar sem kjör, ábyrgð og starfstitlar þróast í takt við reynslu og frammistöðu, með skýrum möguleikum á stöðuhækkunum. Gríðarleg tækifæri eru til vaxtar innan fyrirtækisins fyrir rétta aðila.

Möguleiki er á bæði hluta- og fullu starfi eftir samkomulagi og er vinnutími sveigjanlegur.

Við erum að leita að einstaklingum sem vilja festa sig í sessi, þróast í starfi og vaxa með fyrirtækinu til framtíðar.

Ekki er gerð krafa um að umsækjendur þekki meðferðir okkar eða hafi reynslu af líkamsmeðferðum fyrirfram.

Starfið getur hentað einstaklingum með mjög fjölbreyttan bakgrunn. Reynsla úr þjónustu, heilsu, líkamsrækt, meðferðum eða öðrum störfum þar sem unnið er náið með fólki getur verið kostur, en er ekki skilyrði.

Það sem skiptir okkur mestu máli er að finna réttu einstaklingana – fólk sem hefur áhuga á starfinu, nýtur þess að vinna með fólki, er tilbúið að læra og vill verða virkur hluti af teyminu okkar til framtíðar.

Ef þetta vekur áhuga þinn viljum við gjarnan heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Framkvæma fjölbreyttar heilsu- og líkamsmeðferðir samkvæmt meðferðarferlum og gæðastöðlum THOB.
  • Veita faglega, heiðarlega og einstaklingsmiðaða þjónustu og tryggja framúrskarandi upplifun í hverri heimsókn.
  • Fylgja meðferðaráætlunum viðskiptavina og tryggja vandaða og nákvæma skráningu á meðferðum, meðferðarsögu og framvindu í kerfum stofunnar.
  • Fræða og leiðbeina viðskiptavinum um meðferðir, eftirmeðferð og næstu skref eftir því sem við á.
  • Styðja viðskiptavini í átt að markmiðum sínum og fylgjast markvisst með framvindu og árangri þeirra.
  • Framkvæma meðferðir með öflugum tækjabúnaði og fylgja í hvívetna verklags-, gæða- og öryggisreglum.
  • Miðla mikilvægum upplýsingum um framvindu viðskiptavina til heilsuráðgjafa eða annarra í teyminu þegar þörf er á.
  • Viðhalda háum stöðlum um hreinlæti, frágang og umgengni í meðferðarrýmum.
  • Taka virkan þátt í þjálfun, endurmenntun og áframhaldandi faglegri þróun.
  • Vinna náið með öðrum meðferðaraðilum, heilsuráðgjöfum og teyminu í heild að samræmdum gæðum og framúrskarandi þjónustu.
  • Stuðla að traustu og góðu langtímasambandi við viðskiptavini.
Menntunar- og hæfniskröfur

Ekki er gerð krafa um sérstaka menntun eða reynslu af líkams- eða heilsumeðferðum, enda sjáum við um sérhæfða þjálfun allra meðferðaraðila áður en störf hefjast.

Reynsla af þjónustustörfum, mannlegum samskiptum eða störfum þar sem unnið er náið með fólki er mikill kostur.

Menntun eða reynsla á sviði heilsu, líkamsræktar, nudds, snyrti- eða heilbrigðisgreina er kostur en ekki skilyrði.

Reynsla af því að vinna eftir skýrum verkferlum, halda utan um skráningar og bera sjálfstæða ábyrgð í starfi er kostur.

Góð enskukunnátta er nauðsynleg. Íslenskukunnátta er kostur en ekki skilyrði.

Allir nýir meðferðaraðilar fara í gegnum ítarlega bóklega og verklega þjálfun hjá THOB Academy, þar sem þeir læra meðferðir, tækjabúnað, verklag, öryggisferla og þjónustustaðla THOB.

Við ráðningar horfum við ekki síður til persónulegra eiginleika en menntunar og fyrri starfsreynslu. Áreiðanleiki, metnaður, þjónustulund, góð samskiptahæfni og vilji til að læra og þróast í starfi vega þungt.

Fríðindi í starfi

Við bjóðum:

  • Einstakt og fjölbreytt starf í metnaðarfullu og vaxandi fyrirtæki.
  • Sérhæfða þjálfun ásamt áframhaldandi fræðslu og þjálfun í starfi.
  • Mikil tækifæri til starfsþróunar og stöðuhækkana fyrir rétta einstaklinga.
  • Tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á heilsu, vellíðan og lífsgæði fólks.
  • Sterka liðsheild og jákvætt starfsumhverfi þar sem samvinna og fagmennska eru í fyrirrúmi.
  • Sveigjanlegan vinnutíma og möguleika á bæði hluta- og fullu starfi eftir samkomulagi.
  • Starfstengd fríðindi samkvæmt fríðindakerfi fyrirtækisins.
  • Tækifæri til að vinna með fjölbreyttar meðferðir, öflugan tækjabúnað og sérhæfða meðferðarferla.
  • Starf á einni af leiðandi heilsu- og líkamsklíník landsins, með tækifæri til að vaxa með fyrirtækinu til framtíðar.
Auglýsing birt17. september 2026
Umsóknarfrestur4. október 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Valkvætt
Meðalhæfni
Staðsetning
Fákafen 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar