Bókasafn Mosfellsbæjar
Bókasafn Mosfellsbæjar
Bókasafn Mosfellsbæjar

Deildarstjóri skráningar

Bókasafn Mosfellsbæjar óskar eftir að ráða deildarstjóra skráningar til starfa.

Deildarstjóri skráningar stýrir daglegri starfsemi skráningardeildar innan safnsins og viðheldur skipulagi og uppbyggingu safnkosts í samráði við forstöðumann.

Hann veitir samstarfsfólki bókfræðilega ráðgjöf og leiðsögn og er leiðandi í upplýsingaþjónustu safnsins auk þess að sinna þjónustu við gesti safnsins.

Bókasafn Mosfellsbæjar starfar samkvæmt lögum um almenningsbókasöfn frá 2012 og stefnu bæjarins í menningarmálum. Bókasafnið þjónustar einstaklinga og stofnanir í Mosfellsbæ og stendur fyrir fjölbreyttum menningarviðburðum.

Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Flokkun og skráning og tenging á öllu efni sem berst safninu eða umsjón með því

Pöntun á efni og ákvarðanir um innkaup í samráði við forstöðumann

Ákvarðanir um grisjun

Fagleg ráðgjöf og leiðsögn til starfsfólks

Þjónusta við lánþega safnsins og upplýsingagjöf

Þátttaka í vinnu í tengslum við viðburði á safni

Önnur verkefni sem forstöðumaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólamenntun á sviði bókasafns- og upplýsingafræða

Reynsla af starfi á bókasafni er kostur

Frumkvæði, sjálfstæði og faglegur metnaður

Góð samskiptafærni, jákvæðni og sveigjanleiki og vilji til að vinna í hóp

Góð tölvukunnátta

Góð íslenskukunnátta

Þekking á Gegni og skráningarleyfi frá Landskerfi bókasafna

Auglýsing birt15. maí 2026
Umsóknarfrestur29. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Þverholt 2, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Bókasafns- og upplýsingafræðingur
Starfsgreinar
Starfsmerkingar