

Sérfræðingur á safni RÚV
Við leitum að jákvæðum og skipulögðum sérfræðingi til starfa við skráningu og umsýslu efnis í safni RÚV. Starfið reynir á nákvæmni, þjónustulund, fagmennsku og góða samskiptahæfni.
Sérfræðingur á safni RÚV sinnir reglubundnum verkefnum en sýnir jafnframt áhuga og frumkvæði til að bæta og þróa verkferla.
- Skráning og frágangur efnis með áherslu á tónlist.
- Virk þátttaka í þróun og innleiðingu nýrra aðferða við skráningu og umsýslu efnis.
- Ábyrgð á samræmingu og gæðum skráningar.
- Fjölbreytt samskipti tengd starfssviði safnsins bæði við dagskrárgerðarfólk og þá sem sækja þjónustu í safni RÚV.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Menntun í upplýsingafræði, skjalastjórn eða skyldum greinum er kostur.
- Haldbær reynsla sem nýtist í starfi. Þekking og áhugi á menningu og listum er kostur.
- Góð almenn tölvufærni og hæfni til að tileinka sér ný kerfi. Þekking á skjalakerfum er kostur.
- Sjálfstæði, virk umbótahugsun og frumkvæði í starfi.
- Geta til að sinna nákvæmum og endurtekningarsömum verkefnum af fagmennsku.
- Góð samskiptahæfni og þjónustulund.
- Mjög góð íslenskukunnátta í riti og ræðu og góð almenn tungumálakunnátta.
Umsóknarfrestur er til 24. maí
Nánari upplýsingar um starfið veitir Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri, [email protected]
Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda til að gegna starfinu.
Umsóknir á erlendum tungumálum og umsóknir án viðeigandi umsóknargagna verða ekki teknar til greina.
Við hvetjum áhugasöm til að sækja um starfið, óháð kyni, uppruna eða fötlun.
Íslenska