

Deildarstjóri Raf- og stjórnkerfa
Orka náttúrunnar leitar að framsæknum leiðtoga í hlutverk deildarstjóra Raf- og stjórnkerfa
Deildarstjóri Raf- og stjórnkerfa heyrir undir sviðið Tækni og framkvæmdir.
Sem deildarstjóri munt þú sinna eignarstýringu raf- og stjórnkerfa í virkjunum ON með skilvirkni og rekstraröryggi að leiðarljósi. Deildin sinnir þróun og viðhaldi þessara kerfa og skipuleggur viðhald og uppfærslur þeirra.Raf- og stjórnkerfi sinnir eignastýringu á öllum rafbúnaði í orkuframleiðslukerfum virkjana ON, annars vegar á há- og lágspennubúnaði og hins vegar á stjórn- og tölvukerfum virkjana ásamt varnarbúnaði.
Undir eignastýringu fellur m.a.:
- Viðhaldsáætlanir og eftirfylgni þeirra
- Fjárfestinga- og rekstraráætlanir fyrir viðhald eigna
- Fjárhagslegur rekstur eigna
- Stýring endurbóta og viðhalds
- Úrvinnsla frávika og ákvarðanir um framkvæmd
- Skilgreining og skipulag reglulegs viðhalds
- Umsjón með stöðluðum verklýsingum og verkferlum ásamt uppfærslum
Deildarstjóri Raf- og stjórnkerfa á í miklum samskiptum við aðrar deildir Tækni- og framkvæmda til að skipuleggja og samræma vinnu og verk þvert á virkjanir.
Starfstöð deildarstjóra er á Hellisheiði.
Ef þú hefur áhuga á tækni, framleiðsluferlum og vélbúnaði, býrð yfir leiðtogafærni og ástríðu fyrir virðissköpun í þágu samfélagsins þá hvetjum við þig til þess að sækja um starfið.
Í hlutverki deildarstjóra felst m.a.:
- Ábyrgð á að leiða framúrskarandi teymi til árangurs
- Dagleg stýring og mannauðsmál með áherslu á valdeflingu og vöxt starfsfólks
- Ábyrgð á rekstri einingar, áætlanagerð og eftirfylgni áætlana
- Eignastýring
- Þátttaka í þróun starfsemi ON í samræmi við þarfir og stefnu
- Samstarf og samskipti við aðrar einingar innan ON
Við leitum að einstaklingi sem býr yfir:
- Leiðtogahæfni og reynslu af því að byggja upp markmiðadrifin teymi
- Þekkingu og reynslu af raforkukerfum og rafbúnaði
- Reynslu af að því að vinna með birgjum og ráðgjöfum
- Greiningafærni og hæfni við fjölbreytta framsetningu upplýsinga
- Framúrskarandi samskiptafærni
- Frumkvæði, metnaði og drifkrafti
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Umsókn um starfið skal fylgja ferilskrá og kynningabréf þar sem umsækjendur gera grein fyrir hæfni sinni í starfið með vísan í hæfniskröfur.











