Akureyri
Akureyri
Akureyri

Deildarstjóri í leikskólann Naustatjörn á Akureyri

Leikskólinn Naustatjörn óskar eftir að ráða deildarstjóra í 100% ótímabundið starf frá 6. ágúst 2024 eða eftir samkomulagi.

Í Naustatjörn er lögð áhersla á að nemendur fái að kljást við margvísleg verkefni í gegnum sjálfssprottinn leik og að þeir læri af eigin reynslu, virkni og áhuga.

Áhersluþættir skólans eru leikurinn og Jákvæður agi. Aðrir áhersluþættir eru náttúra og umhverfi og er skólinn handhafi Grænfánans.

Einkunnarorð skólans eru Félagsfærni - Endurnýting - Sjálfstæði - Tillitssemi – Athvarf.

Viltu vita meira? Kíktu í rafræna heimsókn https://naustatjorn.is

Deildarstjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla, kjarasamningum, mannauðs- og skólastefnu Akureyrarbæjar.

Næsti yfirmaður deildarstjóra er leikskólastjóri.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati starfsins á deildinni.
  • Annast daglega verkstjórn á deildinni og ber ábyrgð á að miðla upplýsingum innan deildarinnar, milli deilda leikskólans og milli leikskólastjóra og deildarinnar.
  • Tekur þátt í gerð skólanámskrár, ársáætlunar, mati á starfsemi leikskólans og þróunarverkefnum undir stjórn leikskólastjóra.
  • Ber ábyrgð á og stýrir deildarfundum og skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks deildarinnar.
  • Hefur umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna deildarinnar.
  • Fylgist með að deildin sé búin nauðsynlegum uppeldis- og kennslugögnum í samvinnu við leikskólastjóra.
  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá og ársáætlun leikskólans á deildinni.
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn, umönnun og/eða sérkennslu eftir þörfum.
  • Ber ábyrgð á að meðferðaráætlunum sérfræðinga vegna einstakra barna sé framfylgt.
  • Sér um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra.
  • Situr foreldrafundi sem haldnir eru á vegum leikskólans.
  • Situr starfsmannafundi, deildarstjórafundi og aðra fundi er leikskólastjóri segir til um og varðar starfsemi leikskólans.
  • Sinnir að öðru leyti þeim verkefnum er varðar stjórnun leikskólans sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi eða annarri háskólamenntun (B.s., B.a., B.ed.) sem nýtist í starfi.
  • Óskað er eftir sjálfstæðum, ábyrgum og jákvæðum einstaklingum sem eru tilbúnir til að takast á við skemmtilegt og krefjandi starf með börnum.
  • Reynsla af stjórnun deildar er kostur.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og sveigjanleiki í starfi.
  • Þekking á agastefnu skólans, Jákvæðum aga er kostur.
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli.
  • Almenn tölvukunnátta er nauðsynleg.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing stofnuð30. apríl 2024
Umsóknarfrestur19. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Hólmatún 2, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Sveigjanleiki
Starfsgreinar
Starfsmerkingar