

Deildarstjóri hjá þjónustueiningu á heimili fyrir börn
Sveitarfélagið Árborg leitar eftir öflugum, sjálfstæðum og jákvæðum starfsmanni til að gegna stöðu deildarstjóra í nýrri þjónustueiningu á heimili fyrir börn. Helstu markmið með starfinu er að leitast við að auka lífsgæði og sjálfstæði þjónustunotenda og stuðla að valdeflingu þeirra. Áhersla er á að veita þjónustunotendum persónulegan stuðning í daglegu lífi sem sniðin er að þörfum, aldri, óskum og væntingum hvers og eins. Starf deildarstjóra er skipulagt samkvæmt lögum nr. 38/2018 um málefni fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir auk tengdra reglugerða. Hlutverk deildarstjóra er m.a. að bera faglega ábyrgð á daglegri þjónustu ásamt því að ganga vaktir.
Um er að ræða 100% stöðu en gert er ráð fyrir að deildarstjóri taki vaktir sem hluta af stöðugildi hans.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1000 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Stjórnun og umsjón verkefna
- Samstarf við forstöðumann um faglega ábyrgð
- Ráðgjöf til starfsmanna ásamt forstöðumanni
- Þátttaka í þverfaglegu samstarfi
- Samstarf og samráð við aðstandendur
- Er staðgengill forstöðumanns í fjarveru hans
- Tileinkar sér og vinnur eftir hugmyndafræði málefna fatlaðs fólks og þjónandi leiðsagnar
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
- Þroskaþjálfamenntun eða sambærileg háskólamenntun á sviði heilbrigðis-, mennta- og/eða félagsvísinda
- Reynsla af stjórnun æskileg
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Frumkvæði og samviskusemi
- Þekking og reynsla af þjónustu við fatlað fólk mikilvæg
- Þekking og reynsla á fötlunum barna og áhrifum þeirra á daglegt líf mikilvæg
- Hreint sakavottorð











